|
|
|
|
|
|
 |
|
|
|
| (horsepower) |
|
Mælieining afls. |
|
|
|
|
 |
|
|
|
|
|
 |
|
| :: umsagnir |
|
|
Í stuttu máli:
Stór og mikill jeppi úr smiðju Mercedes Benz sem ber sér margt það besta af tækniþekkingu þessa þýska bílarisa. Þetta er dýr bíll og ber með sér hofmóðuga stöðu. |
|
Tilvitnanir:
"Innandyra er efnisvalið allt eins og best verður á kosið í lúxusjeppa en spurning hvort það sé ekki of fínt fyrir bíl með þessa akstursgetu. Seta í sætum er þægileg en þar sem um sjö sæta bíl er að ræða með þrjár sætaraðir verður setan í sætunum, og þá sérstaklega framsætunum, í styttra lagi. Bíllinn er meira en fimm metrar á lengd og hjólahaf er yfir þrír metrar svo að fótapláss er með besta móti fyrir bíl með þrjár sætaraðir."
Njáll Gunnlaugsson í 5. tbl Bílar&sport 2006 |
|
|
 |
| GL jeppinn frá Benz er mikill bíll. |
Umsögnin:
Það þarf engin að fara í grafgötur með að Mercedes Benz státar af langri og glæstri sögu í framleiðslu framúrskarandi bíla. Nýi GL-jeppinn er að mörgu leyti mjög svo frambærileg viðbót við framleiðslulínuna. Hann sameinar góða aksturseiginleika, mikið rými, þægindi og lúxusyfirbragð. Honum er skotið inn í línuna á eftir ML jeppanum og uppfyllir þar með þörfina fyrir 7 manna bíl. Þetta er mikill dreki og stærð hans kemur dálítið niður á frískleika bílsins. Fyrir þá sem vilja sportlegri bíl hlýtur ML bíllinn áfram að vera sterkari kostur.
Það vill svo skemmtilega til að 400 blaðamenn hvaðanæva úr heiminum komu hingað til lands í júní síðastliðnum þegar DaimlerChrysler kynnti Mercedes Benz GL-Class. Þannig varð Ísland að vettvangi fyrir kynningu á bílnum sem sýnir vel hvað áherslu fyrirtækið leggur á að tengja hann við utanvegaakstur. Bíllinn var fyrst sýndur á bílasýningu í Bandaríkjunum og verður framleiddur í verksmiðju DaimlerChrysler í Tuscaloosa í Alabama. Það er því ljóst að þessi bíll er hugsaður fyrir markaðinn vestanhafs.
- Og samanburðahópurinn, til að nefna einhver nöfn má nefna Audi Q7, Cadillac Escalade, Lexus LX og Lincoln Navigator. Þá hefur BMW sömuleiðis boðað 7 manna jeppa. Þetta virðist vera tilhneigingin núna enda eru framleiðendur stöðugt að fjölga gerðum í fremur misskildu vígbúnaðarkapphlaupi.
Tæknilega skyldur M-jeppanum
Í frágangi og smíði bílsins eru augljóslega vandað til verka enda bíll sem selst á 8-9 milljónir króna. Hér er um öfluga og örugga bifreið að ræða sem býr yfir öllum þeim kostum sem einkenna Mercedes-Benz. Þessi nýi jeppi er að ýmsu leyti tæknilega skyldur M-jeppanum en er þó talsvert frábrugðin hvað virkni og búnað áhrærir. Hann er mun stærri og kröftugri og býður upp á talsvert fleiri möguleika, enda rúmgóður og tekur allt að sjö manns í sæti eins og áður sagði.
Benz hefur hins vegar í gegnum tíðina framleitt "alvöru" jeppa undir G heitinu, Geländewagen, fremur ófríður gripur en margir hafa heillast af honum. Það er því spurning hvort G nafnið vísar til þessen Geländewagen verður áfram framleiddur. GL - línan er hins vegar ekki með grind fremur en ML bíllinn og notast við sömu driflínu. Hægt er að læsa mismunadrifi í millikassa og afturdrifi auk rafdrifinnar niðurgírunnar. Þetta er búnaður sem Benz hefur þróað lengi í 4Matic bílum sínum og er skotheldur. Þó hörðustu jeppamenn segi að þetta fari ekki alla leið þá er ljóst að með þeim búnaði sem bíðst að bíllinn er ansi öflugur en hann er með loftpúðafjöðrun sem gerir kleift að hækka hann úr 197 mm í 307 mm og lækka í 182 mm ef þurfa þykir. Loftpúðafjöðrunin er staðalbúnaður. Þá er í bílnum hallaviðnám og sjö þrepa sjálfskipting. Þá er hann með ESP-stýringu fyrir aftanívagn sem meðal annars er ætlað að draga úr titringi á aftanívagni með því að beita hemlun á hjól bílsins eftir því sem við á.
Gott vélaúrval
Öll ytri hönnun ber sterk höfundareinkenni Mercedes-Benz, sterklegar línur sem undirstrika kraft og snerpu. Jeppinn er mjög rúmgóður, rúmlega 5 metrar að lengd og hjólahaf er 3075 mm. Frábærar vélaútfærslur eru í boði, tvær díselvélar 320 cdi V6 224 hestöfl, með 510 Nm snúningsvægi og 420 cdi V8 306 hestöfl, með 700 Nm snúningsvægi. Tvær bensínvélar 450 V8 340 hestöfl, með 460 Nm snúningsvægi, og 500 V8 388 hestöfl, með 530 Nm snúningsvægi. Hægt er að fá bílinn með krómlistum og á 18, 19 eða 20" felgum. Útblásturskerfið er með tveimur, krómuðum og könntuðum endarörum. Varnargrind að framan og aftan er úr háglansandi ryðfríu stáli (staðalbúnaður í V8) og bíllinn er með krómuðum skíðabogum og krossslám. GL-jeppinn er ríkulega búinn staðalbúnaði og mikið úrval er í boði af aukabúnaði.
Ekki þarf að ræða gæði innandyra en ástæða er þó vekja athygli á góðu efnisvali og margvíslegum búnaði. Eins og í Audi Q7 (og reyndar fleiri bílum) er rafstýrð opnun á afturhlera. Aðgerðarstýri fylgir og aðgerðaskjár sem sumir telja of flókinn. Undirritaður treystir sér ekki til að leggja mat á það fyrr en lengri tilraun hefur verið gerð til að skoða það. Það er hins vegar glæsilegur heildarsvipur yfir innréttingunni og falleg efnisnotkun.
Að hluta til virkar bíllinn of stór og jafnvel fremur en Audi Q7 sem er vel heppnaður bíll og með áhrifamiklar vélar.
Mercedes Benz GL 320 Cdi 4Matic stuttu máli:
Vél: 320 cdi V6
Hestöfl: 224 hestöfl
Tog: 510 Nm snúningsvægi
0-100 km: 9,5 sek.
Hámarkshraði: 210 km.
Gírskipting: 7 gíra sjálfskipting.
Lengd: 5088 mm.
Hjólahaf: 3050 mm.
Farangursrými: 1.240-2.300 lítra
Verð:
Umboð: Askja ehf.
|
|
| Föstudagur, 06. október 2006 - 13:23 |
|
|
 |
|
|
|