billinn.is - íslenski bílavefurinn
  Nissan Pathfinder 2,5 D 2005   Land Rover Defender 2007   Suzuki Liana 2004
fréttir
umsagnir
greinar
spurt/svarað
tenglar
lánareiknivél
Orðabókin
Undirstýring
Þegar framendi bílsins leitar út úr beygju.
:: umsagnir
Vel búinn smájeppi
-
Í stuttu máli:
Bíllinn er boðinn með þremur vélum, nýrri 2,0 lítra bensínvél sem sérstaklega var smíðuð með þennan bíl í huga. 2,0 lítra nýrri dísilvél og síðan 3,5 lítra vélinni sem hefur verið boðin með Santa Fe og Terracan jeppunum frá Hyundai. Beinskiptur bíll með 2,0 lítra vélinni verður seldur á verði frá 2.390.000 kr. þannig að augljóslega er verið að reyna að koma bílnum undir þá jepplinga sem nú eru í boði. Undirritaður fékk aðstöðu til að prófa lítillega nýju díselvélina og svo V6. Díselvélin olli dálítlum vonbrigðum, kom seint inn (túrbó-töf) og togaði ekki á nógu víðu bili. V6 vélin stendur hins vegar vel fyrir sínu enda þekkt úr Santa Fe. Það að setja hana í minni bíl eflir nýtingu hennar ef eitthvað er.

Kostir:
Búnaður
Vél
Gallar:
Samanburður við Santa Fe
Útsýni
Hyundai Tucson er með rafstýrt fjórhjóladrif
Hyundai Tucson er með rafstýrt fjórhjóladrif
Umsögnin:
Hyundai Tucson hefur reynst vinsæll smájeppi þau tvö ár sem hann hefur verið í sölu hér á landi. Það er svo sem engin furða, þetta eru hagkvæm kaup og menn hafa verið að fá annsi mikið fyrir peninginn. Nú fæst hann í spariútgáfu á ríflega 3,4 milljónir króna. Þá er hann með stærri vél, leðri, sóllúgu og margvíslegum öðrum búnaði.

Þegar maður skoðar Tucson er honum helst í óhag að stærri bróðir hans, Santa Fe er mjög svo frambærilegur bíll og nýja gerðin mjög vel úr garði gerð. En fyrir þann búnað sem kaupandi færð hér þyrfti að öllum líkindum að greiða ríflega milljón hærri upphæð ef menn vilja kaupa Santa Fe. Það er líklega sá munur sem sölumenn Hyundai hafa í huga þegar Tucson er boðinn á þessu verði.

Hyundai Tucson var kynntur hér á landi í byrjun október 2004 en hafði fyrst verið kynntur fyrir Evrópubúum á bílasýningunni í Genf veturinn á undan. Hann var síðan valinn jepplingur ársins 2004 af Bandalagi íslenskra bílablaðamanna (BÍBB) sem er sjálfsagt mesta upphefð sem honum hefur hlotnast!

Tucson bættist í sístækkandi hóp fjórhjóladrifsbíla frá Hyundai og ljóst að félagið leggur mikið upp úr að bjóða breytt úrval slíkra bíla. Bíllinn er nokkuð minni en Santa Fe og ekki minkaði munurinn við síðustu breytingar á Santa Fe. Hann er því líklega helst að keppa við Kia Sportage og Outlander frá Mitsubishi.

Tucson hefur fallið íslenskum kaupendum í geð enda fyrir þá sem vilja duglegan bíl með sítengdu aldrifi á viðráðanlegu verði.

Rafstýrt fjórhjóladrif

Tucson er með rafstýrt fjórhjóladrif sem ætlað er að laga að ólíkum akstursaðstæðum. ECU búnaðurinn, rafstýrði hluti drifkerfisins, á að sjá Tucson fyrir öflugum drifkrafti og miklu veggripi; nokkuð sem getur skipt verulegu máli þegar á reynir. Búnaðurinn miðlar þannig afli til þeirra dekkja sem hafa minnst grip hverju sinni. Þá sér hann einnig um "læsa" á milli fram- og afturdekkja þannig að afli er miðlað 50/50 til fram- og afturöxuls. Sérstakur hnappur er fyrir læsinguna í mælaborðinu, en hún fer síðan sjálfkrafa af um leið og ekið er hraðar en 40 km/klst. ECU búnaðurinn er rafeindaheili sem fylgist náið með m.a. akstursstefnu, inngjöf og snúningshraða á dekkjunum. Út frá þessum upplýsingum metur búnaðurinn síðan aðstæður og miðlar afli til dekkjanna út frá því.

Þessi virka aflmiðlun ECU rafeindabúnaðarins þýðir jafnframt, að við venjulegar aðstæður nýtir Tucson sér aðeins framhjóladrifið sem ætti að gera hann hagstæðari í rekstri. Tucson er byggður á undirvagni frá Elöntrunni en honum hefur verið nokkuð breytt. Það má segja að það sé ekki sanngjarnt að leggja keilugöng á bíl eins og Tucson en við slíkar aðstæður koma gallar hans sem akstursbíls í ljós. Veggrip lítið og veltutilfinning kemur inn. Utan vegar klífur hann hins vegar vel áfram þó það hefði verið til bóta að hafa hærra undir hann.

Rýmið í bílnum er þokkalegt en þó ekkrt til að hrópa húrra yfir. Þegar aftursætin eru lögð saman samlagast þau skottgólfinu, en á sætisbökunum er sama klæðning og á gólfinu á skottinu. Þetta er gert til að auðvelda flutninga í bílnum og auðvelda þryf á farangursrýminu í heild sinni. Það er ekki hátt undir Tucsoninn (19,5 sm) og undir flestum kringumstæðum væri það til vandræða en lítil skögun til endanna og háir sílsar bæta úr.




Mikið lagt upp úr öryggi

Bíllinn er að sjálfsögðu búinn ABS hemlum með EBD bremsujöfnun. Beygjuradíusinn er einungis 5,4 metrar en bíllinn er búinn Macpherson fjöðrunarkerfi eins og svo margir kóreanskir jeppar. Sérstyrktir stálbitar mynda eins konar öryggisklefa utan um bílstjóra og farþega og innbyggð árekstrarvörn er ætlað að draga úr höggþunga af völdum áreksturs á jeppann framanverðan. Þá eru öll sæti með hnakkapúða og 3punkta öryggisbelti með dempurum og beltastrekkjurum. Framsæti eru enn fremur með tvöfalda beltastrekkjara fyrir enn öruggari skorðun og miðjubeltið að aftanverðu er með sérstakan aukalás á 2. punktinum til að auka öryggi þess sætis enn frekar.

Beltastrekkjarar þjóna þeim mikilvæga tilgangi að skorða fólk af í bílsætunum, þannig að það kastist síður til, á meðan demparar draga úr þeim meiðslum sem öryggisbeltin geta hugsanlega valdið. Þá eru sex tveggjaþrepa loftpúðar í Tucson, tveir að framan og aðrir tveir til beggja hliða framsætanna og tveir gardínupúðar að auki, sem liggja eftir endilangri hliðinni beggja vegna. Þetta er vel í lagt fyrir svo lítinn bíl en sérstakir nemar sjá um að meta út frá höggþynd og hvar á sportjeppanum höggið lendir, hvaða loftpúðar fara af stað og af hve miklum þrýstingi. Þar sem loftpúðarnir eru tveggjaþrepa blásast þeir mismikið út, allt eftir aðstæðum.

Bíllinn er búinn TCS spólvörn og er hún staðalbúnaður. Til þessa hefur ESP stöðugleikastýring verið valbúnaður en hún dregur úr undir- eða yfirstýringu á hlkykkjóttum vegum eða í hálku. Hún fylgir í þessu verði og er það vel.

Sigurður Már Jónsson, september 2006


Hyundai Tucson 2,7 V6 í stuttu máli:

Vél: Sex strokka, 2,7 l.

Afl: 173 hö. við 6.000 sn.

Tog: 241 Nm við 4.000 sn.

Drif: sítengt aldrif

Hröðun: 10,5 sek úr 0-100 km.

Hámarkshraði: 180 km.

Lengd: 4325 mm

Breidd: 1795 mm

Hæð: 1730 mm

Eyðsla í blönduðum akstri: 10 l.

Innanbæjar: 13,2 l.


Hestöfl: 173 hö.

Verð: 3.420.000.-

Umboð: B&L
Mánudagur, 11. september 2006 - 22:08
MSN Messenger Display Pictures
Nýjar umsagnir
Suzuki SX4
Kia ceed
Toyota Hilux
Suzuki Alto
Suzuki Kizashi
Mercedes-Benz B 180 NGT
Toyota Land Cruiser 150
Lexus RX 450h
Chevrolet Cruze
Chevrolet Aveo
Audi Q5
Toyota Urban
Golf VI Trendline
Subaru Forester
Chevrolet Captiva