billinn.is - íslenski bílavefurinn Frumherji
  Audi Q7 2006   Chevrolet Captiva 2008   Porsche 911 2004
fréttir
umsagnir
greinar
spurt/svarað
tenglar
lánareiknivél
Orðabókin
Undirstýring
Þegar framendi bílsins leitar út úr beygju.
:: umsagnir
Stórgerð limósína
- fyrir unnendur öðruvísi bíla
Í stuttu máli:
Mjög áhugaverð kaup á óvenjulegum bíl. Chrysler 300 C kemur á óvart, bæði hvað varðar búnað, aksturseiginleika og efnisnotkun. Þetta er ekki bíll fyrir alla en þeir sem eru að leita að einhverju óvenjulegu í lífinu verða skemmtilega hissa.
Tilvitnanir:
"Þótt frágangur sé að flestu leyti góður inni í bílnum er efnisval og hönnun lakari en í þeim bílum sem Chrysler vísar í sem keppinauta 300C, þ.e.a.s. BMW 5 og Mercedes-Benz E. Það er gott fótarými í aftursætum en vegna hárrar hliðarlínu bílsins er útsýni þaðan takmarkað. Í bílnum er að finna hart plast, eins og t.d. í hirslulokum og það er viðareftirlíking í hurðum og stýri. "

Guðjón Guðmundsson Morgunblaðinu 5. janúar 2005.
Kostir:
Búnaður
Verð
Akstursgæði
Útlit
Fjöðrun
Vél
Gallar:
Útsýni
Hurðir mættu opnast betur
Bremsur
Útlit
Vantar armpúða fyrir ökumann
Vélin kemur frá Mercedes-Benz, 3,5 lítra, V6.
Vélin kemur frá Mercedes-Benz, 3,5 lítra, V6.
Umsögnin:
Útlit Chryslers 300 C vekur mikla athygli og óhætt að segja að hann fái menn enn til að snúa sér við á götunni þó nú sé vel á annað ár síðan hann fór að sjást hér. Sérstaklega þegar hann fæst í jafn glæsilegri útgáfu og hér var reynd. Chryslers 300 C sker sig úr bæði að utan og innan og hefur allt að því framúrstefnulegt limósínuútlit. Hann er klossaður en þó rennilegur, luralegur en þó sterkbyggður, framandlegur en þó klassískur. Þannig má segja að maður finni margvíslegar mótsagnir í útliti bílsins sem vekja í senn forvitni og furðu og verður að segjast eins og er að það er sérstakt ánægjuefni að framleiðendur kjósa enn að smíða svo óvenjulega bíla í útliti. Þetta er bíll sem er ekki annað hægt en að hafa sterkar skoðanir á. Undirritaður verður einnig að segja að fyrir utan 300 hestafla Mustanginn sem hann prófaði í fyrra þá hefur hann ekki haft jafn mikla ánægju af amerískum bíl í langan tíma eins og þessum.

- Og sannarlega er hann amerískur. Íburðamikið útlit og stórskorin framendi segja allt sem segja þarf en eigi að síður er margt áhugavert og jafnvel heillandi við þennan bíl og við skulum ekkert vera að gera okkur rellu út af því þótt brandarakallarnir í Top Gear hafi aðra skoðun. Ef við stoppum aðens lengur við útlitið þá eru heildsteyptar línur í bílnum sem hafa betri samsvörun en maður sér oft. Reyndar finnst undirrituðum að Chrysler hafi lengi haft forskot á aðra ameríska framleiðendur þegar kemur að hönnun þó Ford eigi líka ágæta spretti. - Það er síður að hægt sé að skilja hvað hönnunardeild GM er að fara. En vissulega er stórskorið útlit bílsins umdeilanlegt og sumir vildu sjálfsagt hafa gluggana stærri þó það sjáist þokkalega út um þá.

Að innan blasir fyrst við hve gríðarlega rúmgóður hann er og hefur maður varla fundið jafn gott fótarými í langan tíma, bæði framí og afturí. Limósínutilfinningin er algjör þegar afturí er komið og varla að maður finni annan bíl sem jafnast á við þetta, meira að segja ekki stærri gerðir af þýsku bílunum. Á milli er niðurfellanlegur bekkur fyrir drykkjarílát og slíkt. Mælaborðið er að mörgu leyti gott og á það sérstaklega við um miðjustokkinn sem er fallega hannaður með aksturstölvu í miðjunni. Meira að segja efnisnotkun í mælaborði er mjög vel viðunandi þó hún virki ekki eins vönduð og í samkeppnisbílunum sem eru reyndar mun dýrari. Já við hvaða bíla ber maður þennan við? Líklega eru það helst E-Bensinn og 7 lína frá BMW en sjálfsagt einnig Aud A6, Lexus 430 og jafnvel Jagúar. Allt verulega dýrari bílar og um leið traustari í endursölu. Vert er þó að geta þess að Chrysler 300 var kosinn "bestu kaup" (Consumer Guide Best Buy) í sínum flokki af bílaneytendum í Bandaríkjunum fyrr á þessu ári. Það hlýtur að segja nokkuð.

Chrysler 300 fæst með þremur vélagerðum; 2.7 lítra V6 vél sem gefur 200 hestöfl við 5.800 snúninga og togi upp á 190 NM við 4.850 snúninga. Millibíllinn eins og hér var prófaður er með 3.5 lítra V6 vél sem gefur 250 hestöfl við 6.400 og 250 Nm við 3.900 snúninga. Stærsta vélin er V-8, 5.7 litra HEMI-vél með beinni innspýtingu og (Multi-Displacement System) en hún gefur 340 hestöfl við 5.000 snúninga og togar 390 Nm. Með stærstu vélinni kemur fimm þrepa sjálfskipting en fjögurra með hinum. Einnig fylgir ESP kerfi bílnum.

Þeir sem reyna 300 C bílinn verða skemmtilega hissa þegar kemur að aksturseiginleikum. Fjöðrunin er nokkuð stíf þó hún sé heldur mýkri en hjá þýskum samkeppnisbílum. Þannig má segja að Daimler hafi fært samstarfsmönnum sínum í Chrysler nýjar áherslu í stífleika og finnst þetta vel þegar hann er tekin í hringtorg en hann sest nánast ekkert niður að framan. Hann er með gormafjöðrun og ekki er boðið upp á loftpúða.

Sætin eru betri en í flestum amerískum bílum þó þau virki dálítið stór þá er þokkalegur stuðningur í þeim. Setan er þannig að það er gott að aka í langkeyrslu og ökumaður er í þægilegri hæð. Útsýni til hliða mætti hins vegar vera meira en stórir póstar og farþegi geta dregið úr hliðarsýn. Það krefst þess að menn gæti vel að sér. Einnig finnst menni eins og það mættu vera armpúðar fyrir ökumann þannig að hann geti hvílt hendina. Stýrðið er í stærra lagi en það er dálítið smekksatriði hvernig menn vilja hafa það. Þar má hins vegar finna aðgerðataka og svo er aksturstölva í bílnum eins og áður sagði. Hvalbakurinn framí er mikill og lýsandi fyrir það rými sem í bílnum má finna.

Það hefur stundum verið galli á amerískum bílum að ekki er hugsað fyrir bremsum en þær virðast vera fullnægjandi fyrir þetta tveggja tonna flykki. Bíllinn er rúmir fimm metrar á lengd, 1,9 meter á breidd og því engin smásmíði. Líklega myndi hann rúmast illa í evrópskum smáborgum og maður þarf að venjast því að bakka og hreyfa hann til í þrengslum. Það er reyndar þægilegt að baksýnisspeglarnir elta sjónlínuna niður þegar sett er í bakkgírinn. Ekki verður maður var við veg- eða vindhljóð en þess bera að geta að ekki náðist að keyra mikið á malarvegi.

Margir segjast fá Benz-tilfinningu þegar sest er inn í bílinn og vissulega er hann afrakstur samstarfs Benz og Chryslers. Hann fæst þó eingöngu hér á landi í gegnum Studiobíla ehf. og bjóða þeir tveggja ára ábyrgð. Askja ehf. er með umboð fyrir Chrysler og hafði tilkynnt að félagið hyggðist hefja sölu á bílnum frá þeim síðasta vetur en á því hefur orðið dráttur. Verðið er ríflega fimm milljónir króna eins og dollarinn stendur núna. Þar fylgja með 18 tommu felgur og stór og mikil dekk. Hann er afturhjóladrifinn og fjórhjóladrif er aukabúnaður fyrir 380 þúsund krónur. Ef það kemur líka frá Benz þá er það athyglisverður kostur.

Vélin kemur frá Mercedes-Benz, 3,5 lítra, V6, sú sama og notuð er í S 350 og einnig í E-línunni og ML-350. Hún er því vel reynd og sjálfsagt anda margir léttar að hér er ekki um að ræða ameríska V6 vél sem hafa svona og svona orð á sér. Eyðslan í blönduðum akstri er gefin vera 11,1 líter en í reynsluakstrinum tókst varla að koma honum niður fyrir 18 lítra. Hröðun í 100 km. er gefin vera 9,2 sek. sem er töluvert meira en í samkeppnisbílunum enda þungur bíll. Vinslan er hins vegar fín og slær ekkert af.

Sigurður Már Jónsson


Miðvikudagur, 30. ágúst 2006 - 21:38
MSN Messenger Display Pictures
Nýjar umsagnir
Suzuki SX4
Kia ceed
Toyota Hilux
Suzuki Alto
Suzuki Kizashi
Mercedes-Benz B 180 NGT
Toyota Land Cruiser 150
Lexus RX 450h
Chevrolet Cruze
Chevrolet Aveo
Audi Q5
Toyota Urban
Golf VI Trendline
Subaru Forester
Chevrolet Captiva