|
|
|
|
|
|
 |
|
|
|
|
|
Algeng skammstöfun sem stendur fyrir 'Double OverHead Camshaft' sem merkir tvöfaldur, yfirliggjandi knastás. |
|
|
|
|
 |
|
|
|
|
|
 |
|
| :: umsagnir |
|
|
Í stuttu máli:
Óhætt er að segja að þetta sé áhugaverður bíll og góður valkostur í bíla-flórunni þótt hann stingi keppinautanna ekkert af í samanburðinum enda erum við að tala um dýra og vel hannaða bíla. Þetta er traustlegur og vel smíðaður bíll og frágangur og efnisval í takt við dýrustu jeppa. Þá spillir ekki fyrir að hann eyðir sáralitlu sem kemur vægast sagt á óvart en það er enn ein sönnunin hve frábærar vélar Audi hefur náð að framleiða. |
|
Tilvitnanir:
"Það er mikil og vaxandi eftirspurn eftir borgarjeppum og flestir framleiðendur hafa upp á slíka valkosti að bjóða. Audi fer samt aðra leið en þeir flestir. Q7 er nefnilega stærri, aflmeiri og betur búinn í grunninn en þeir. Tækifæri gafst til að prófa hógværustu gerðina í Q7-línunni á dögunum. Þetta er bíll með V6 dísilvél sem skilar 233 hestöflum og hvorki meira né minna en 500 Nm togi. Og það er þetta með hógværðina; bíllinn er stútfullur af búnaði, jafnt að utan sem innan."
Guðjón Guðmundsson, Morgunblaðinu 12. maí 2006 |
|
|
 |
| Audi Q7 er með sterka hönnun. |
Umsögnin:
Audi Q7 er mikill bíll, bæði að utan og innan og markar áhrifamikla innkomu Audi-merkisins á jeppamarkaðinn. Innan fyrirtækisins er auðvitað mikil þekking á fjórhjóladrifi eins og þekkist svo vel í quattro-bílunum og Audi Allroad hefur verið frambærilegur bíll þó veghæðin hafi ekki verið mikil. Það var því ekki nema von að nokkur eftirvænting ríkti gagnvart jeppanum nú þegar Audi kemur inn á þann markað.
Það var því töluverð spenna þegar tókst að komast í reynsluakstur á bíl með V6 dísilvélinni á Suðurlandi fyrir skömmu. Ekki tókst að reyna hann utan vega eða í hálku eins og gefur að skila og því vantar nokkuð upp á að hægt sé að gefa alhliða álit. Þessi kynni gefa hins vegar sterka vísbendingar um að nú verði samkeppnisaðilarnir að bíta í skjaldarrendurnar.
V6 dísilvélin skilar 233 hestöflum og hvorki meira né minna en 500 Nm togi. Þetta er sannast sagna stórskemmtileg vél og helst að maður hugsi til V10 díselvélarinnar í VW Touareq sem togar 750 Nm. sem mun vera togmesta díselvél í jeppa. Audi-inn er þungur bíll en dísilvélin þeytir honum áfram og hröðun við framúrakstur var ekkert mál. Það heyrist kummr í vélinni þegar hún er knúin áfram en annars er hljóð frá vegi, vindi eða vél í lágmarki. Þetta er vél sem á eftir að eignast marga aðdáendur en þetta mun vera sama vél að upplagi og er boðin í A6 og A8. Það hafa hins vegar verið gerðar á henni breytingar og hún skilar fleiri hestöflum en í A6 og meira togi en bæði í A6 og A8.
Dísilvélin er tengd við sex þrepa sjálfskiptingu sem er með handskiptivali (tiptronic). Hún er með svokallaðri S-stillingu sem gerir skiptinguna sportlegri en þar er hægt er að þenja hann lengur í gírum. Ekki þarf að hafa mörg orð um að skiptingin er fullkomlega hnökralaus og mjúk rétt eins og í samkeppnisbílunum.
Þó bensínvélin sé ekki til umfjöllunar hér hefur undirritaður fengið áhrifamiklar lýsingar á henni hjá einum eiganda sem fjárfesti í slíku tæki (forstjórabíll -- hvað annað). Hef það fyrir satt að bensínvélin sé snilldarlega uppsett með skemmtilegt vinnslusvið og hreinlega orgar þegar henni er snúið. Vélin er hvorki meira né minna en 350 hestöfl eða 10 hestöflum meira en í S bílnum hjá Porsche og því þarf ekki að kvarta yfir aflinu. Togið er 440 Nm. Innan skamms verður boðið upp á þriðju vélina eða 3,6 l VR6-bensínvél, sem verður eina gerðin í boði með beinskiptingu. En þegar alls þessa er gætt er óhætt að segja að eyðslan veki furðu en hún er ekki nema 14,6 lítrar í innanbæjar og 10,5 lítrar í blönduðum akstri, að því er framleiðandi fullyrðir. Því miður bauð reynsluaksturinn ekki upp á að sannreyna þessar tölur! Það hefur frést af því að bensínbíllinn komi líka verulega á óvart þegar kemur að eyðslu.
Frábær frágangur
Öll hönnun bílsins er til fyrirmyndar og frágangur óumdeilanlegur. Þetta er mikill bíll, ríflega fimm metrar og tekur því sitt pláss. Það er þó lítið mál að snattast á honum sé skynsemi beitt og bakkskynjarar skipa máli þó ekki fylgi bakkmyndavél sem mun vera seld sem aukabúnaður erlendis. Sama má segja um leiðsögukerfið en það er boðið sem aukabúnaður erlendis en ekki hér. Að innan má segja að stærðarhlutföllin séu tónuð niður með margvíslegum hætti og tekist vel til þannig að öllu er smekklega fyrirkomið. Helstu aðgerðum eins og því að stýra síma, hljómtækjum og miðstöð/loftkælingu er stjórnað með tökkum og snúningsrofa sem eru staðsettir á milli framsætanna. Á sjö tommu litaskjá gefur að líta helstu aðgerðir.
Bíllinn sem hér var reyndur var ekki með loftpúðafjöðrun sem undirritaður hefur þó fyrir satt að sé með því besta sem gerist. Hægt er að stilla comfort, automatic, dynamic, off-road og lift sem er hæsta stilling. Mjög góður búnaður segja þeir sem hafa reynt. Prófunarbíllinn var hins vegar með gormafjöðrun og fimm sæta. Drifkerfið er sítengt Torsen-fjórhjóladrif þar sem togátakið dreifist 42% til framhjólanna og 58% til afturhjólanna.
Mjög gott innan rými einkennir bílinn enda Q7 stærri að grunnfleti en til dæmis Land Cruiser 100, einn vinsælasti forstjórabíll landsins, og sæti afbragð. Q7 liggur geysivel á möl og veghljóð er tiltölulega lítið og vindgnauð vart heyranlegt enda bíllinn með minnsta viðnám í sínum flokki. Menn sem hafa samanburð við LC 100 við drátt á hjólhýsum hafa fullyrt við undirritaðan að Audi Q7 vinni betur með hjólhýsið í drætti en LC 100 án hússins! Til að gæta sanngirni má benda á að LC 100 er komin til ára sinna og ný gerð á leiðinni. Ef einhver jeppi hefur náð að verða klassískur á Íslandi er það líklega hann (og kannski Land Rover en það er önnur saga). Tölvubúnaður stillir fjöðrun og skriðvörnina þegar húsið er tengt og hægt er að fylgjast með því á skjánum sem er mjög þægilegt.
Verðið hlýtur að teljast nokkuð stór galli og hann virðist vera hlutfallslega dýr á Íslandi þótt umboðið bendi réttilega á að í honum sé meiri staðalbúnaður en almennt erlendis og má vera að eitthvað sé til í því en loftpúðafjöðrun ásamt 7 sæta útfærslu er þó staðabúnaður í Bretlandi en ekki hér.
Ekki samt sanngjarnt að bera hann verðlega saman við Porche, Touareq, ML Benz og fleiri -- hvað þá BMW X5 -- enda er þetta stærri bíll á alla kanta. Ljóst er að Audi kemur inn í stærsta flokkinn og væntanlega eru minni bílar á leiðinni. Sumir hafa talað um að suð í quattro drifbúnaðinum sé að pirra þá en undirritaður náði ekki að taka eftir því. Hugsanlega kemur það til vegna álbyggingarinnar. Hægt er að fá allar útgáfur Audi Q7 með 19 eða 230 tommu felgum.
Seta í bílnum er ekki allra þar sem útsýni er takmarkað en það leynir að sama skapi hraða. Þetta er ekki ólíkt því sem finna má í Chryslernum og menn kunna þessari setu ágætlega og finna aldrei fyrir ferðaþreytu. Farþegar frammí hafa kvartað yfir að það þrengi aðeins að fótum í hægra framsæti en það er ekki til að gera mikið veður út af því. Mörgum finnst þessi bíll orðinn full stór og maður finnur fyrir hverri tommu þegar lagt er í stæði en beygju radíus er samt þokkalegur.
Sigurður Már Jónsson
Audi Q7 3.0 TDI quattro
Vél: V6, 2.967 cm3, 24 ventlar.
Afl: 233 hö/4.000 sn. á mín.
Tog: 500 Nm/1.750- 2.750 sn. á mínútu.
Gírskipting: Sex þrepa sjálfskipting með hand skiptivali.
Drif: Sítengt fjórhjóladrif.
Hröðun: 9,1 sekúnda úr kyrrstöðu í 100 km.
Hámarkshraði:
210 km/klst. beinsk.
216 km/klst. sjálfsk.
Eyðsla: 14,6 l innanbæjar, 10,5 l í blönduðum akstri (skv. framleiðanda).
Eldsneytisgeymir: 100 ltr.
Lengd: 5086 mm.
Breidd: 1983 mm.
Hæð: 1737 mm.
Veghæð: 205 mm.
Farangursrými: 775- 2.035 lítrar.
Eigin þyngd: 2295 kg.
Dráttargeta: 3.000 kg.
Hemlar: Kældir diskar að framan og aftan, ABS, EBD, EDL, ASR, ESP.
Hjólbarðar: 235/60 R18
Felgur: Ál 7J x 18.
Verð: 7.990.000 kr.
Umboð: Hekla hf.
|
|
| Miðvikudagur, 23. ágúst 2006 - 16:45 |
|
|
 |
|
|
|