|
|
|
|
|
|
 |
|
|
|
|
|
Algeng skammstöfun sem stendur fyrir 'Double OverHead Camshaft' sem merkir tvöfaldur, yfirliggjandi knastás. |
|
|
|
|
 |
|
|
|
|
|
 |
|
| :: umsagnir |
|
|
Í stuttu máli:
VW Touareg birtist hér með sinni fimmtu vélaútfærslu. Öflug dísilvélin smellpassar við bílinn og gerir hann að áhugaverðum kosti í síharðnandi slag á dísilvélamarkaði hér á landi. |
|
Tilvitnanir:
"Touareg er með sambyggða yfirbyggingu og burðargrind og er fyrir vikið léttur í meðhöndlun og með óvenjulega mikið veggrip, ekki síst í þeirri útfærslu sem prófuð var með loftpúðafjöðrun. Í bæklingum um bílinn er tönglast á því að hann búi yfir þessu tvíeðli; að vera fyrirtaks hraðakstursbíll og torfærutæki. Aldrei þessu vant er ekkert við þessar staðhæfingar að athuga. Það er sannarlega hægt að þeysast á þessum bíl þótt aðstæður og reglur hérlendis bjóði að sjálfsögðu ekki upp á akstur á 210 km hraða, eins og bíllinn er gerður fyrir."
Guðjón Guðmundsson í Morgunblaðinu 5.ágúst 2005 |
|
|
Umsögnin:
Óhætt er að segja að vélaframboðið í VW Touareg sé orðið nokkuð rausnarlegt með tilkomu nýrrar V6 TDI dísilvélar en hún er nýjasta viðbótin í vélarsafn þessa þýska þægindajeppa sem svo mikilla vinsælda hefur notið hér á landi. Þegar á allt er litið virðist vélin smellpassa fyrir íslenskan markað en hún var tekin til kostanna í skottúr til Siglufjarðar fyrir stuttu.
Fyrir voru tvær dísilvélar hjá Touareg. R5 TDI sem afkastar 174 hestöflum (128 kW) og togar 400 Nm. Það er seig vél en enginn rokkur og það tekur 12,4 sek. að ná 100 km hraða sem er tæpast að falla að sportlegri ímynd Touareg. Bilið var síðan nokkuð stórt því V10 TDI er síðan öflugasti dísilhreyfill allra tíma í fjöldaframleiddum bíl eins og VW-menn minna stöðugt á með stolti. Sú vél var prófuð síðasta sumar og vakti mikla hrifningu. Óhætt er að segja að þessi mikli bíll hafi blómstrað með V10 vélinni, skárra væri það nú, togið 750 Nm við 2000 sn/mín! Viðbragðið er um 7,8. En sá bíll kostar 8,4 milljónir og því ljóst að hann var ekki á allra færi.
Öflugar bensínvélar
Bensínvélarnar eru tvær, V6 sem skilar 220 hestöflum, 305 Nm snúningsvægi og er 9,9 sek. í hundraðið. V8 vélin er 8,1 sek. í hundraðið en hún skilar 310 hestöflum og 410 Nm snúningsvægi. Þar er eldsneytiseyðslan orðin um 15 lítrar í blönduðum akstri og grunnverð hans er um sjö milljónir. Þess má reyndar geta að V8 og V10 eru báðir með loftpúðafjöðrunina sem staðalbúnað og munar um það, þar sem fyrir hana þarf að borga 335.000 kr. Eftir að hafa kynnst kostum hennar má segja að það sé tæpast valkostur að sleppa henni. Án loftpúðafjöðrunarinnar er Touareg ekki að skila sínu og verður fyrst og fremst borgarjeppi.
En hér var hún semsagt prófuð, ný V6 TDI vél með 3000 cc slagrúmtaki. Hún afkastar 225 hestöflum við 4000 sn. Togið er einnig mjög rausnarlegt eða 500Nm við 1759 sn. Með fylgir síðan sex þrepa sjálfskipting með handskiptivali. Það hvarflar að manni þegar bíllinn er prófaður að þetta sé rétti bíllinn, eyðslan mjög skapleg eða 10 til 11 lítrar í langkeyrslu og aflið og togið ávalt nægjanlegt. Vissulega tók eyðslan við sér þegar lagt var á vélina en þessar tölur verða þó að teljast innan skynsamlegra marka. VW brá á það ráð að sækja vélina til dótturfélags síns Audi en þeir hafa notað hliðstæða útfærslu hennar í Audi 6.
Loftpúðafjöðrunin nauðsynleg
Þó að grunverðið verði að teljast viðunandi, 5.950.000 kr., þá vantar töluvert upp í að það skili bílnum eins og hann virkar best. Eins og áður sagði er nánast útilokað að tala um utanvegagetu hans nema loftpúðafjöðrunin fylgi.
- Og hún er einmitt það sem skilur VW Touareg frá mörgum öðrum borgarjeppum (hér leyfir höfundur sér stundum að tala um borgarjeppa, lúxusjeppa og þægindajeppa þó yfirleitt sé verið að ræða um sama fyrirbærið). Ef við leyfum okkur að fella, auk Touareg, Porsche Cayenne, BMW X5, Lexus, Range Rover og ML Benz undir þennan flokk þá sést að það eru Touareg, Range Rover og Porsche sem bjóða upp á loftpúðafjöðrun og þar af leiðandi í öðrum flokki hvað varðar utanvegagetu. Þegar horft er til verðuppbyggingar hjá Range Rover og Porsche er ljóst að Touareg hefur góða samkeppnisstöðu. Með þessari vélaviðbót er ekki að sjá annað en að línan sé fullkomnuð hjá VW Touareg.
Touareg er nú að koma með sína fjórðu árgerð án þess að hafa gert neinar umtalsverðar breytingar á bílnum. Óhætt er að segja að bíllinn hafi fest sig vel í sessi meðal þeirra sem vilja vandaðan borgarbíl með mikla utanvegagetu. Þess má geta að það vakti sérstaka hrifningu undirritaðs hve feykilega vel hann lá á ómalbikuðum kafla á Þverárfjalsheiði. Það var í raun sérstök upplifun að keyra þann kafla nánast eins og á malbiki væri, slík var rásfestan og öryggið. Við slíkar aðstæður hefði hann jafnvel getað dugað til hraðaksturs en að sjálfsögðu dettur engum slíkt í hug!
Allur búnaður og frágangur er til fyrirmyndar enda gerður fyrir kaupendahóp sem lætur ekki bjóða sér neinar málamiðlanir þar. Efnisval markast að hluta til af því hvað kaupendur vilja leggja á pyngjuna en bílar sem þessir eru hvort sem er ekki fyrir þá sem þurfa að velta því mikið fyrir sér.
Sigurður Már Jónsson
VW Touareg 3000 cc TDI í stuttu máli:
Vél: V6
Fjöldi ventla á strokk: 4
Slagrúmtak: 3000
Afköst/sn/mín: 225 hö/4000 sn.
Snúningsvægi: 500Nm/1759 sn.
Gírkassi: Sjálfskiptur, 6 þrepa.
Þyngd dráttartækis: 3500 kg
Hröðun (0-100): 9,9 sek.
Eyðsla í blönduðum akstri: 10,9 l.
Stærð eldsneytisgeymis: 100 l.
Hjól: 235/65x17
Lengd: 4754 mm
Breidd: 1928 mm
Hæð: 1726 mm.
Veghæð: 237/300 mm.
Farangursrými: 555/1570
Verð: 5.950.000 kr.
Verð reynsluakstursbíls: 7.000.000 kr.
Umboð: Hekla. |
|
| Þriðjudagur, 09. ágúst 2005 - 14:00 |
|
|
 |
|
|
|