billinn.is - íslenski bílavefurinn
   SsangYong Rexton 2008   Suzuki Swift 1,3 dísil 2005   Ford Expedition 2008
fréttir
umsagnir
greinar
spurt/svarað
tenglar
lánareiknivél
Orðabókin
DOHC
Algeng skammstöfun sem stendur fyrir 'Double OverHead Camshaft' sem merkir tvöfaldur, yfirliggjandi knastás.
:: umsagnir
Lúxusbíll frá Kia
- vísbending um aukin metnað hjá kóreönskum framleiðendum
Í stuttu máli:
Áhugaverður bíll í lúxusflokki frá framleiðanda sem hingað til hefur einbeitt sér að hagkvæmum og ódýrum bílum. Bíllinn er vel búinn að mörgu leyti en ósagt skal látið hvort menn vilja leita í smiðju Kia í leit að lúxus.
Kostir:
Búnaður
Hönnun
Vélarstærð
Gallar:
Hljómflutningstæki
Hönnun
Opirus er búinn 3,5 lítra Sigma vél V6 með fimmhraða sjálfskiptingu.
Opirus er búinn 3,5 lítra Sigma vél V6 með fimmhraða sjálfskiptingu.
Umsögnin:
Hér er um að ræða nýjan bíl frá Kia sem ætlað er að sækja inn á markað fyrir dýari millistærðarbíla. Hann dregur nafn sitt af hinni fornu borg Ophir sem í eina tíð var miðstöð verslunar með gull og fílabein. Gott ef hennar hefur ekki verið getið í heimsbókmenntunum, s.s. bókunum um Tarzan!

Með smíði Opirus er Kia að færa sig inn á metnaðarfyllri markað og fást við hluti sem þeir hafa ekki fengist við áður. Félagið hefur varið fjórum árum og um það bil 167 milljónum dala í smíði bílsins en það jafngildir um 11 milljörðum króna. Með bílnum er það ætlun Kia sækja inn á dýrari markað þar sem þörf er fyrir vandað efnisvali og mikinn búnaði. Opirus er staðsettur mitt á milli fjölskyldubíla og minni lúxusbíla. Í kynningarefni Kia kemur fram að bíllinn sé einkum borin saman við Nissan Maxima QX, Chrysler 300M, Peugeot 607 og Chevrolet Caprice. Bíllinn er hugsaður fyrir markaði í Norður-Ameríku, Evrópu og Asíu. Markhópurinn er fólk á fimmtugsaldri sem sækist eftir vel búnum bíl á viðráðanlegu verði.

Framleiðsla hans er liður í þeirri stefnu félagsins að bjóða upp á víðtækt úrval bíla. Útflutningur þessa suður-kóreska bílaframleiðanda jókst um 115% á síðasta ári og þar af jókst útflutningur mest til Evrópu, eða um 428%. Greinilegt er að Kia er í stórsókn og leitast við að breikka línu sína.

Dramatík í útliti

Að útliti er hann dálítið dramatíseraður að framan og aftan eins og títt er um s-kóreanska bíla sem eru á leiðinni upp markaðinn. Dettur e-h í hug Daewoo Chairman? Ef horft er á hann undir ákveðnu sjónarhorni að framan minnir hann jafnvel á Benz, með þessum kringlóttu ljósum og grillið ýtir frekar undir þessa tilfinningu enda fremur íburðarmikið. Tilviljun? Varla. Hönnun hans að aftan hefur hins vegar tekist nokkuð vel.

Innrarýmið er mikið og fótrými afturí sérlega rausnarlegt. Efnisnotkun er dálítið glossaraleg, svona eins og menn átti sig ekki alveg á út á hvað lúxusbílar ganga. Mælaborðið er tvískipt og að ofan er inndregin stokkur sem undirrituðum finnst ekki alveg ganga upp. Að aftan er armpúði sem fellur niður og þar má finna stýringar fyrir hita í sætunum að aftan. Einnig er sér hitastilling fyrir hann að aftan. Sætin framí eru rafstýrð og stjórnrofunum er sniðuglega fyrirkomið. Sömuleiðis er hann búinn xenonljósum.

Mælarnir eru skýrir aflestar, með einhverskonar díóðuljósum. Bíllinn er skreyttur valhnotuvið sem virkaði nógu ekta til að undirritaður léti sannfærast. Einnig er hann búinn viðarstýri en eðlilegt hefði verið að hafa aðgerðartakka þar í ljósi þess í hvað flokki hann er að keppa. Þegar að var gáð kom í ljós að hann er að öllu jöfnu búinn aðgerðastýri þó það hafi skort í reynsluakstursbílinn. Þá er búnaður sem þrífur ljósin að framan sem verður að teljast til fyrirmyndar.

Þá voru hljómtækin varla boðleg fyrir svo dýran bíl. Frekar sjoppuleg og virðast vera mixuð í enda sýndist hann í öðrum útgáfum þannig að reynsluakstursbíllinn var tæpast dæmigerður. Í "réttu" útgáfunni" kemur hann með aksturstölvu og þar eru innbyggð hljómflutningstæki feld smekklega í miðjustokkinn ef marka þá bæklinga sem undirritaður sá.

Þokkalegt viðbragð

Opirus er búinn 3,5 lítra Sigma vél V6 með fimmhraða sjálfskiptingu með handskiptivali. Nokkurskonar sportskiptingu. Það þarf ekki að kvarta yfir aflinu sem gefur þokkalegt viðbragð. Hann er léttur í stýri, jafnvel um of. Þá hefur bíllinn fyrir sið að gefa frá sér píp þegar honum er skipt í afturábakgír.

Töluverður öryggisbúnaður í honum, þar má nefna stöðugleikastýringu ESP (Electronic Stability Program) bremsujöfnun BAS (Brake Assist System) og ECS (Electronic Control Suspension). Í bílnum eru 8 loftpúðar og þar á meðal sérstakar gardínur til hliðanna


Opirus SE 3,5 sjálfsskiptur kostar 4.230.000 krónur sem er nokkuð hátt verð og spurning hvort menn myndu ekki fara að skoða minni gerðir klassískra eðalvagna þegar það er komið upp í þetta verð. Bíllinn er vel búinn að mörgu leyti en ósagt skal látið hvort menn vilja leita í smiðju Kia í leit að lúxus. En vissulega er plássið gott.

Sigurður Már Jónsson

Kia Opirus:

Vél: Búinn 3,5 lítra Sigma vél V6 með fimmhraða sjálfskiptingu með handskiptivali. Nokkurskonar sportskiptingu.

200 hö/5.500 sn.

300 Nm/ 3.500 sn.

Hámarkshraði: 220 km.

Lengd: 4979 mm

Breidd: 1850 mm

Hæð: 1486 mm.

Hjólahaf: 2800 mm.

Búin orkusparnaðar búnaði variable intak system (VIS).
Mánudagur, 25. júlí 2005 - 12:18
MSN Messenger Display Pictures
Nýjar umsagnir
Suzuki SX4
Kia ceed
Toyota Hilux
Suzuki Alto
Suzuki Kizashi
Mercedes-Benz B 180 NGT
Toyota Land Cruiser 150
Lexus RX 450h
Chevrolet Cruze
Chevrolet Aveo
Audi Q5
Toyota Urban
Golf VI Trendline
Subaru Forester
Chevrolet Captiva