billinn.is - íslenski bílavefurinn
  Hyundai Tucson 2005   Chevrolet Captiva 2008   Peugeot 407SW 2.0HDi 2005
fréttir
umsagnir
greinar
spurt/svarað
tenglar
lánareiknivél
Orðabókin
DOHC
Algeng skammstöfun sem stendur fyrir 'Double OverHead Camshaft' sem merkir tvöfaldur, yfirliggjandi knastás.
:: umsagnir
Frískur þristur fyrir lokasprettinn
- lokaárið stundum það besta
Í stuttu máli:
Þrjú-línan hjá BMW er nú á sjöunda og síðasta framleiðsluári og því spennandi að vita hvað verður boðið upp á á lokasprettinum en eins og menn vita fylgja oft slíkum bílum kaupauki svo kaupendur haldi nú ekki að sér höndunum áður en nýja gerðin rennur í hlað. Reynsluakstursbíllinn að þessu sinni var 318iA Exclusive SE með tveggja lítra vél. BMW 3 línan er söluhæsti bíll fyrirtækisins frá upphafi. Í 3 línunni frá BMW fléttast saman klassískur glæsileiki og sportlegt yfirbragð en nýtt útlit er á leiðinni. Nú á lokaári fá kaupendur ýmislegt úr dóttakassa BMW.
Tilvitnanir:
Prófunarbíllinn var með sjálfskiptingu með handskiptivali, eins og svo margir framleiðendur eru farnir að bjóða. Sjálfskipting BMW er með því móti að hægt er að velja um venjulegt skiptimynstur eða sportlegt mynstur sem gerir það að verkum að bíllinn skiptir sér seinna upp og því hægt að snúa vélinni hraðar. Þetta er kostur því mesta aflið næst út úr þessari vél á háum snúningi. Fyrir þá sem vilja snúa vélinni allt upp í sex þúsund snúninga á mínútu, en þar fyrst nást hestarnir 143, er handskiptivalið kostur. Upplifun undirritaðs er á hinn bóginn sú að bíllinn sé snarpari og skemmtilegri með beinskiptingu því þrátt fyrir sportmynstrið tekur sjálfskiptingin of mikið afl frá bílnum. Með þessari vél er bíllinn engin hraðaksturskerra, miklu heldur traustvekjandi akstursbíll með jafna og þétta vinnslu.

Guðjón Guðmundsson 30. júní 2004.
Kostir:
Sex ára reynsla
Veggrip
Fjöðrun
Vél
Skiptingin
Gallar:
Með gamalt útlit
Verð
Litlir útispeglar
Margir takkar
Upptakið
Menn vita svo sem hvað í BMW-merkinu felst.
Menn vita svo sem hvað í BMW-merkinu felst.
Umsögnin:
Þrjú-línan hjá BMW er nú á sjöunda og síðasta framleiðsluári og því spennandi að vita hvað verður boðið upp á á lokasprettinum en eins og menn vita fylgja oft slíkum bílum kaupauki svo kaupendur haldi nú ekki að sér höndunum áður en nýja gerðin rennur í hlað. Reynsluakstursbíllinn að þessu sinni var 318iA Exclusive SE með tveggja lítra vél. Skotheldur bíll sem hefur þjónað kröfuhörðum BMW aðdáendum vel en núverandi útlitið er síðan 2001 andlitslyftingin átti sér stað. Þá birtist hann með nýrri Valvetronic-vél sem er háþróaður búnaður sem stýrir opnun- og opnunartíma ventlanna sem síðan stýra loftflæði og loftmagni inn á strokkana og jafnar brennsluna til mikilla muna. Um leið birtist hann með nýrri spólvörn og fjöðrunin hafði verið stillt heldur stífari og stýrið jafnvel enn nákvæmara en áður. Bíllinn er því nákvæmari í hreyfingum á grófum vegum en nokkru sinni áður og var þó ekki yfir miklu að kvarta.

Gæði kosta sitt

Verðið á reynsluakstursbílnum er reyndar myndarlegt eða tæpar 3,9 milljónir króna en í þessari útfærslu er líka margt boðið með bílnum, s.s. metalic lakk, samlitir hurðahúnar og ristar, 16 tommu álfelgur, skriðstillir, þokuljós í stuðara, leður innrétting og leðurstýri, armpúði milli sæta, sjálfvirk loftkæling, aðgerðarstýri, hljómtæki í hæsta gæðaflokki, króm út um allt og aksturstölva. -- Sannkallaður fyrirmennabíll og ekki nema vona að þristurinn sé söluhæsti BMW gerðin frá upphafi. Verður spennandi að sjá hvaða breytingar verður ráðist í en sjálfsagt höfum við fengið forsmekk af því í gegnum hönnun á 5 línunni. Það hefur verið mikið að gerast hjá BMW og ljóst að fyrirtækið er metnaðarfullt sem fyrr í þróun sinni.

Þristurinn er ákaflega smekklega búinn að innan en þar er hið hefðbundna BMW mælaborð í forgrunni. Það virkar sem fyrr fremur flókið enda mikið af tökkum og stillingum en í stýrinu er þó búið að koma aðgerðarrofum fyrir útvarp og skriðstilli sem er til mikill abóta. Miðstöðin er auðstillanleg og þægileg. Rýmið aftur í er ekkert til að hrópa húrra yfir og aukið höfuðrými hefði verið til bóta. Ekki eru rafstillingar á sætum og það þarf dálítið að hafa fyrir sætisstillingum. Útispeglarnir eru ekki mjög stórir og hefðu skammlaust mátt vera lítið eitt stærri til að hægt væri hafa full not af þeim.


Vel búinn

Upptakið er ekkert til að missa sig yfir en 318iA Exclusive SE er gefin upp vera 10,2 sek. í 100 km. sem er þokkalegt en gefur kannski ekki mjög mikla sportbílatilfinningu. Með því að nota handskiptinguna á að vera hægt að hraða honum meira. Bíllinn er búinn 5 þrepa sjálfskiptingu með handskiptivali. Hnökralaus skipting eins og ávallt í BMW og einn besti kostur hans. Bíllinn er búinn DSC stöðugleikastýringu (premium class) og þá á sérstakur búnaður að tryggja jafna þyngdardreifingu sem kemur í veg fyrir undirstýringu og dugar vel í hálku. Þá er bíllinn búinn afar næmu aðgerðarstýri og spólvörn.

Eins og oft með þýska bíla þarf að reyna þá á verulegum snúningi til að átta sig á hvað þeir geta. Það verður að hafa í huga að þýskum bílum er gjarnan ætlað að vinna á akstursbilinu 100 til 200 km. hraða en á því bili gerast hlutirnir á þýsku hraðbrautunum. Greinilegt er að ökumaður á að geta sótt sér viðbótarafl, ætli hann að stunda framúrakstur, og millihröðun bílsins er ágæt. Sumir kvarta yfir lítilli hröðun í upphafi og vissulega setur sjálfskiptingin bílinn ekki í kvartmílubílaflokk. En steptronic-skiptingin gerir margt fyrir bílinn þannig að ökumaðurinn fær tækifæri til að upplifa beinskipta eiginleika kjósi hann svo.

Sigurður Már Jónsson, ágúst 2004


318iA Exclusive SE í stuttu máli:


Vél: Fjögra strokka, 1.995 rúmsentimetra, 16 ventla Valvetronic.

Hestöfl/sn. 143 hö.

Snúningsvægi/sn.: 200 Nm / 6000 sn.

Hröðun úr 0 til 100 km/klst: 10,2 sek.

Hámarkshraði: 214 km/klst.

Eigin þyngd: 1435 kg

Lengd: 4471 mm

Breidd: 1739 mm

Hæð: 1415 mm

Farangursrými: 440 l.

Grunnverð: 3.860.000 kr.

Umboð: B&L




Mánudagur, 13. september 2004 - 18:17
MSN Messenger Display Pictures
Nýjar umsagnir
Suzuki SX4
Kia ceed
Toyota Hilux
Suzuki Alto
Suzuki Kizashi
Mercedes-Benz B 180 NGT
Toyota Land Cruiser 150
Lexus RX 450h
Chevrolet Cruze
Chevrolet Aveo
Audi Q5
Toyota Urban
Golf VI Trendline
Subaru Forester
Chevrolet Captiva