|
|
|
|
|
|
 |
|
|
|
|
|
Þegar afturendi leitar út úr beygju. |
|
|
|
|
 |
|
|
|
|
|
 |
|
| :: umsagnir |
|
|
Í stuttu máli:
Nýr Focus er á næsta leiti og því tjalda þeir Ford-menn öllu sem til er á lokaári þessa vinsæla bíls. ST170 bíllinn er með mjög svo áhugaverða aksturseiginleika og sýnir okkur nýja hlið á þessum bíl sem lengst af hefur verið fremur hógvær fjölskylduvagn í samkeppni á rólegri enda bílamarkaðarins. |
|
Tilvitnanir:
"Eins og fleiri bílar í þessum flokki er sterka hlið ST170 ekki upptakið heldur millihröðun og vinnsla. Hann hraðar sér úr kyrrstöðu í 100 km á 8,2 sekúndum sem er þó ekki nema 1,3 sekúndu betra en 130 hestafla bíllinn gerir. En millihröðunin er sterka hlið þessa bíls og reyndar finnst að hann er nokkuð lággíraður. Það bjargar þó málum að hann kemur með handskiptum sex gíra kassa og sjötti gírinn kemur í góðar þarfir á langkeyrslu. Gírskiptingin er sportleg; fremur stutt á milli gíra og hún er lipur að því undanskildu að nokkra lagni þarf til að koma bílnum hnökralaust í bakkgír. "
Guðjón Guðmundsson í Morgunblaðinu 9. júní 2004. |
|
|
 |
| Ford Focus |
Umsögnin:
Brimborg hefur undanfarið verið með Ford Focus ST170, sportbíll á sérstöku tilboðsverði enda má segja að nú þegar þessi vinsæli sölubíll er á lokasprettinum sé öllu tjaldað til. ST170 bíllinn er með mjög svo áhugaverða aksturseiginleika og sýnir okkur nýja hlið á þessum bíl sem lengst af hefur verið fremur hógvær fjölskylduvagn í samkeppni á rólegri enda bílamarkaðarins. Focus hefur nú verið í umferð síðan 1999 en segja má að útlit bílsins hafi tekist vel og ekki er það það sem rekur á eftir breytingum nú. Það eru kannski ekki allir sem muna að hann leysti Ford Escort af hólmi en þó framförin hafi verið augljós ætlar hann ekki að verða jafn langlífur. það er reyndar svo að það eru margir sem vilja gjarnan eignast lokaútfærslu bíla og halda því fram að þá fyrst séu framleiðendurnir búnir að sníða af alla vankannta. Sel það ekki dýrara en ég keypti það!
En nú býður Ford semsagt Focus með sérstökum búnaði en nokkuð er um liðið síðan þessi bíll fór að sjást á markaði í Evrópu. Aðaltrompið er vélin sem er sérlega öflug, 2,0i 16 ventla Xetec sem er 173 hestöfl og togið er 195Nm. Hröðunin 0 - 100 km er 8,2 sek. Búnaðurinn er mjög ríkulegur og má þar nefna: 6 gíra, TCS spólvörn, ESP stöðuleikastýrikerfi, Recaro sólar með leður/pluss áklæði, vindskeiða að aftan, Xenon aðalljós, 17" ST álfelgur, rafdrifin sóllúga, loftkæling, kastarar, ál-pedalar og svo mætti lengi telja. Króm útblástursrör auka enn á sportlegt útlit. Verðið sem bíllinn hefur verið boðin á er einnig nokkuð athyglisvert eða 2.999.000. kr. -- kannski ekki svo mikið fyrir svo fjölhæfan akstursbíl en það verður að athugast að hér miðast verðið við þriggja dyra útfærslu.
Skemmtilegt útlit
Eins og áður sagði þá er það ekkert í útliti Focus-bílsins sem rekur á eftir breytingu. Hönnun Ford Focus þótti ákaflega vel heppnað og óhætt að segja að það hafi boriði sterkan keim af "New Edge Design"-útlitslínu þeirri sem Ford hélt sig við lengi vel. Þessi nýja árgerð hefur tekið á sig talsverðar breytingar í útliti og má þar helst nefna fleiri ljós að framan sem lýsa fram og niður og henta vel á vegum úti. Þetta eykur birtumagn og bætir öryggið. Focus er þýður og afar vel hljóðeinangraður. Innanrými er yfrið í þessum bíl, einkum frammi í en þriggja dyra útfærslan gerir hann jafnvel enn sportlegri. Þar er hann ágætlega rúmgóður til hliðanna og fótarýmið gott. Sérstök hönnun mælaborðsins á sinn þátt í því að gefa honum heildstætt útlit og er vel í samræmi við ytra útlit bílsins. Mælaborð í ST útfærslunni er með sportlegum skífumælum í sulfurlitaðri málmumgjörð. Mjög gott er að sjá á þá. Hurðir opnast vel út og því gott rými við að setjast inn í bílinn og fara út úr honum.
Bæði Focus og Mondeo hafa um nokkurt skeið verið boðnir með ST útfærslu þar sem sportlegir eiginleikar bílanna hafa verið auknir til muna og öllu tjaldað til. Gott dæmi um það eru pedalarnir sem hér birtast eins og í kappakstursbíl með málmáferð. Fleiri smáatriði eru aukin til að gefa bílnum sportlega eiginleika. En það er vélin og aksturseiginleikarnir sem skera þar úr en ST stendur fyrir Sports Technologies. Óhætt er að segja að vel hafi tekist til við að efla bílinn. Krafturinn í góðu meðallagi og aksturinn snarpur, ákveðin en þó öruggur enda bíllinn búinn bæði ABS hemlunarkerfi og TCS stöðugleikakerfi sem flytur afl á milli hjóla eftir þörfum til að finna hámarksgrip. Bíllinn snarliggur en gaman hefði verið ef boðið hefði verið upp á fleiri fjöðrunarkerfi. Það er ekki á allt kosið en óhætt að mæla með þessum kaupum fyrir þá sem eru að leita að e-h nýju á skaplegu verði. Hugsanlega má láta reyna á afmælisskap umboðsins en í kringum sportbílasýninguna í vor var hann boðinn á enn hagstæðara verði. Einn meinlegur galli fanst á bílnum en sérlega illa gekk að koma honum í bakkgírinn, svo illa að það var pirrandi.
Sigurður Már Jónsson í Viðskiptablaðinu í júlí 2004
Ford Focus ST 170 í stuttu máli:
Vél: 2,0i 16 ventla Xetec.
Afl: 173 hö. við 7000 sn.
Tog: 196 Nm. við 5.500 sn.
Hröðun úr 0-100 km: 8,2 sek.
Hámarkshraði: 216 km.
Eyðsla í bl. akstri: 9,1 l.
Verð: 2.999.000. kr.*
Umboð: Brimborg.
* Hér um að ræða sérstakt tilboðsverð.
|
|
| Þriðjudagur, 27. júlí 2004 - 23:48 |
|
|
 |
|
|
|