billinn.is - íslenski bílavefurinn
  Porsche 911 2004   Benz B-170 2005   BMW X3 2004
fréttir
umsagnir
greinar
spurt/svarað
tenglar
lánareiknivél
Orðabókin
Yfirstýring
Þegar afturendi leitar út úr beygju.
:: umsagnir
Fallegur nytjabíll frá Subaru
- bíll ársins í Japan 2003-2004
Í stuttu máli:
Reynsluakstur á Subaru Legacy sýnir glögglega af hverju þessi nýja uppfærsla á vinsælum sölubíll var valinn bíll ársins í Japan. Góðir akstureigeinleikar tvinnast vel saman við öfluga vél og vandaðan búnað.
Tilvitnanir:
"Breytingin á Subaru Legacy milli kynslóða er að öllu leyti velheppnuð. Bíllinn er nútímalegri og vandaðri að innan og útlitsbreytingar að utan eru hógværar, en það sem mest er um vert er að bíllinn er orðinn aflmeiri og aksturseiginleikarnir hafa breyst í takt við stærri bíl með meira hjólhafi. Bíllinn er ágætlega búinn að því undanskildu að í honum er ekki stöðugleikastýring, sem er búnaður sem hefur verið að festa sig í sessi í stöðugt fleiri bílum að undanförnu. Verðið hefur hækkað í takt við breytingarnar..."

Guðjón Guðmundsson í Mbl. 14. janúar 2004
Kostir:
Akstursgæði
Fjórhjóladrif
Hönnun
Staðalbúnaður
Gallar:
Vantar stöðuleikastýringu
Legacy er boðinn með 2,0 lítra boxervél sem gefur nú 138 hestöfl.
Legacy er boðinn með 2,0 lítra boxervél sem gefur nú 138 hestöfl.
Umsögnin:
Nýjasta útgáfan af Subaru Legacy ber mörg einkenni fyrstu Legacy-bílanna sem komu á markaðinn 1989. Frá upphafi hefur Legacy borið með sér nokkuð sportlegan blæ og jafnt og stöðugt hefur bílnum farið fram í frágangi og efnisnotkun. Í dag blasir við okkur fallega hannaður bíll sem án efa hefði verið að seljast betur ef umboðsaðili hans hefði ekki verið að berjast með hendur fyrir aftan bak undanfarið. Það stendur þó vonandi til bóta.

Hér var reynsluekin Subaru Legacy skutbíll GL með 138 hö. vél sem kostar 2.710.000 kr. beinskiptur en 2.790.000 sjálfskiptur en bíllinn hefur hækkað um 100.000 kr. síðan um áramót þegar hann var fyrst kynntur en þá vakti verðið athygli fyrir hversu hagstætt það var. Gengisþróunin hefur reyndar ekki verið hagstæð síðan.

Að þessu sinni var prófaður sjálfskipti bíllinn en hann er með handskiptivali. Legacy er búin ríkulegum staðalbúnaði en þar má nefna aflstýri, veltistýri, fjarstýrðum samlæsingum, loftpúðum fyrir farþega og bílstjóra, hliðarloftpúðum, 3 punkta öryggisbelti í aftursætum, útvarpi, geislaspilara og ABS hemlum. Vinsæl sölubíll í gegnum tíðina enda hentar hann vel fyrir íslenskar aðstæður með öflugu fjórhjóladrifi. Legacy hefur eins áður segir áunnið sér vinsældir enda endingagóður og þægilegur í viðhaldi. Þá hefur hann verið þokkalegur í endursölu.

Töluverðar útlitsbreytingar

Töluverðar útlitsbreytingar hafa verið gerðar á bílnum og eru línur harðari ef eitthvað er, sérstaklega að framan þar sem brot í vélhlífinni er áberandi og gefur bílnum kröftugt yfirbragð enda vel straumlínulaga. Framljósinn hafa einnig verið stílfærð. Ég er ekki frá því að breytingarnar sjáist enn betur á sedan-bílnum sem að sumu leyti svipar til BMW 5-línunnar eftir nýjustu breytingar.

Margvíslegar breytingar hafa verið gerðar á bílnum frá fyrri gerðum. Hann er breiðari á milli hjóla, hjólahaf hefur verið aukið og fyrir vikið hefur innanrými verið aukið. Oft hefur maður haft efasemdir um efnisnotkun í Subaru-bílum en það á ekki við hér. Legacy-inn er snyrtilega hannaður að innan þó varla sé hægt að tala um nein tilþrif í því sambandi. Allt sem á við að vera er til staðar í skynsamlegri armslengd en ekkert umfram það. Sæti eru þægileg og aðkoma að bílnum einnig, gott er að setjast inn og stíga út.



Léttur í akstri

Legacy-inn er furðu léttur í akstri enda hefur fjöðrun hans verið endurhönnuð. Hjólahalli framhjólanna hefur verið tvöfaldaður frá eldri gerð til að fá sem mest úr eiginleikum hjólbarðanna hvort heldur er í beinum akstri eða í beyjum. Bil milli hjóla er meira, bæði að framan og aftan, afstaða fjöðrunarinnar endurhönnuð og ný burðargrind að framan, allt til þess að auka rásfestu bílsins og draga úr veghljóði. Allt þetta hefur tekist vel, hér er um að ræða hörkuakstursbíl. Vitaskuld má velta fyrir sér hvort ekki eigi að vera stöðugleikastýring í bíl sem þessu, hún er farin að koma með flestum bílum.

Í bílnum er rafeindastýrð hemlajöfnunarkerfi EBDS sem auðveldar ökumanni að hemla og stýra samtímis meðan nýir og fyrirferðaminni hemlaskynjarar veita meiri nákvæmni í læsivörn hemlanna.

Farangursrými Legacy er stórt og aðgengilegt. 60/40 skipt niðurfellanlegt aftursæti eykur enn á fjölbreytni á flutningum. Til viðbótar er slétt farmrými sem auðveldar umgengni um bílinn. Í farangursrými er öryggisyfirbreiðsla sem gerir skutbílinn enn öruggari.



Eyðslugrönn vél

Vélin er fjögurra strokka bensínknúin boxervél með láréttum gagnstæðum strokkum. Einfaldur yfirliggjandi kambás, 16 ventla.
Snörp og kraftmikil vél sem maður finnst nást ótrúlega mikið út úr. Hún býr yfir góðu togi og er furðu snörp upp. Legacy er 138 hö. og hefur verið aukið við hestöflin frá fyrri gerð en um leið hefur dregið úr eldsneytiseyðslunni. Bíllinn er gefin upp með 7,7 lítra meðalnotkun en 10,4 lítra í borgarakstri. Það er vel sloppið.

Bíllinn er hljóðlátur, bæði frá vél og vegi en lista vanti á rúður að ofan. Eitt af einkennistáknum Subaru og hafa margir haft efasemdir um það fyrirkomulag en hér verður ekki séð að það hafi nein neikvæð áhrif.



Sigurður Már Jónsson, maí 2004


Subaru Legacy GL (sjálfskiptur) í stuttu máli:

Vél: Fjögurra strokka bensínknúin boxervél með láréttum gagnstæðum strokkum. Einfaldur yfirliggjandi kambás, 16 ventla.

Hestöfl/sn.: 138 hö/5600 sn.

Tog: 187Nm/4400 sn.

0-100 km.: 12,2 sek

Hámarkshraði: 182 km.

Eiginþyngd: 1379 kg.

Lengd: 4720 mm

Breidd: 1730 mm

Hæð: 1470 mm

Hjólahaf: 2670 mm

Eyðsla í blönduðum akstri: 7,7 lítra.

Verð: 2.790.000

Umboð: Ingvar Helgason hf.
Miðvikudagur, 19. maí 2004 - 11:50
MSN Messenger Display Pictures
Nýjar umsagnir
Suzuki SX4
Kia ceed
Toyota Hilux
Suzuki Alto
Suzuki Kizashi
Mercedes-Benz B 180 NGT
Toyota Land Cruiser 150
Lexus RX 450h
Chevrolet Cruze
Chevrolet Aveo
Audi Q5
Toyota Urban
Golf VI Trendline
Subaru Forester
Chevrolet Captiva