billinn.is - íslenski bílavefurinn Frumherji
  Lexus RX 450h 2010   Mitsubishi Outlander 2004   Citroën C5 1,6 HDi 2005
fréttir
umsagnir
greinar
spurt/svarað
tenglar
lánareiknivél
Orðabókin
Hestafl (horsepower)
Mælieining afls.
:: umsagnir
Dísilvélin er skynsamlegur valkostur
- Fjölbreytni í vélastærð hjá VW Touareg
Í stuttu máli:
VW Touareg-jeppinn færst í nokkrum útfærslum en hér var reynsluekinn R5 TDI díseljeppinn sem verður að teljast nokkuð hagkvæmur kostur. Þessi bíll hefur notið mikilla vinsælda og er á góðri leið með að taka yfir sem vinsælasti forstjórajeppinn. Akstursgæði og öflugur búnaður stuðla öðru fremur að því.
Tilvitnanir:
"Í nær 25 ár hef ég aldrei hrifist jafn mikið af torfærugetu bíls eins og í Touareg...Touareg er hverrar krónu virði. Það sem gerir Touareg að spennandi kosti, er mjög vandaður frágangur á innréttingu og hinn mikli öryggisbúnaður sem er til staðar.”

Blaðamaður Forbes
Kostir:
Aksturseiginleikar
Verð
Búnaður
Sæti
Gallar:
Ljósadýrð í mælaborði
Bíllinn er með lykillaust aðgengi.
Bíllinn er með lykillaust aðgengi.
Umsögnin:
Viðtökur VW Touareg-jeppans hér á landi hafa farið fram úr björtustu vonum og breytir engu þó væntingar þeirra Heklu-mann hafi verið miklar. Sömuleiðis hefur bíllinn reynst mjög vel. Sama á við um markaði erlendis og má sem dæmi taka að sala á Touareg í Hollandi, Belgíu og Lúxemborg er ríflega helmingi meiri en áætlað var. Það þykir "töff" á þessum mörkuðum, sem hingað til hafa þótt fólksbílamarkaðir, að aka um á jeppa eins og Touareg. Jeppinn virðist þannig hafa komið á markaðinn á hárréttu augnabliki.

Víða í Evrópu eru það stóru vélarnar, 4,2 lítra V8 bensínvél og 5,0 lítra V10 dísilvél, sem hafa dregið vagninn en nú er það nýja dísilvélin R5 TDI sem hvað mest eftirspurn er eftir og það sama telja Heklu-menn að muni gerast hér á landi. Um er að ræða afar hljóðláta, aflmikla vél með togkraft upp á 400 Nm og 174 hestöfl. Fyrstu bílarnir búnir þessari vél eru komnir til landsins og verða kynntir á næstu vikum og einn var tekinn í reynsluakstur hér. Verðið á bílnum er frá um það bil 5.500.000 krónum en reynsluakstursbílinn kostar 6,2 milljónir króna. Hægt er að panta allan aukabúnað sem áður hefur verið kynntur í Touareg, s.s. loftpúðafjöðrun, lykillaust aðgengi og gangsetningu, zenon-ljós og svo mætti lengi telja. Allir Touareg-bílar eru auk þess búnir háu og lágu drifi og með læsanlegum millikassa. Þá er hægt panta raflæsingu á fram- og afturöxla.

Hér á landi höfðu verið skráðir á fjórða tug VW Touareg jeppa síðasta haust þegar þessi bíll var dæmdur í Viðskiptablaðinu - og nokkrir voru á leiðinni þannig að þeim fjölgar ört á götunum. Heklu-menn hafa þó ekki átt í vandræðum með að fá nægt magn - um ársbiðlisti mun vera eftir V10 bílnum í Þýskalandi og R5 TDI er ekki auðvelt að fá. Heklumenn voru þó ríflegir í að áætla sölu á jeppann þannig að þeir segjast treysta sér til að afgreiða bíla jafnt og þétt næstu mánuðina.

Skynsamlegur valkostur

Að þessu sinni var prófuð dísilvélin R5 TDI sem óhætt er að ætla að seljist nokkuð af hér á landi. Dísiljeppar seljast einfaldlega meira og V10-vélin er ekki á allra færi. Vitaskuld er nokkur munur á viðbragðinu frá því sem maður kynntist hjá 3,2 lítra V6-bensínvélinni en undirritaður hafði áður fengið tækifæri til að reyna hann og verið nokkuð ánægður með en sá bíll gefur 220 hestöfl. Með dísilvélinni minnir bílinn meira á jeppa, háværari og aðeins silalegri. Staðreyndin er hins vegar sú að manni hættir til að gleyma að hér sé jeppi á ferð, allt aðgengi er mun þægilegra en maður á að venjast í slíkum bílum og akstursgæði minna á fólksbíl. Þegar horft er til þess að lúxusjeppar eins og Touareg uppfylla um 90% af akstursþörf þeirra sem í dag keyra á jeppum er ekki nema von að landinn taki honum vel. Verðið ætti ekki að fæla frá þó að vissulega kosti bíllinn skilding. En það er ekkert leyndarmál að hér fá menn þægindi lúxusbílsins samhliða því að bjóða upp á aksturseiginleika sportbíla í götuakstri. -- Og verulega utanvegagetu.


Þýskir frændur

Undirritaður hefur áður gert að umtalsefni útlit og skyldleika Tourareg og Porsche-jeppans enda hafa þeir hjá VW verið duglegir að ganga í smiðju þeirra Porsche-manna og fengið undirvagn, hönnun, fjöðrunarkerfi og vélarhönnun frá Porsche. Að útliti eru þessir fjarskyldu frændur ekki ólíkir. Lögunin reyndar dálítið óræð og línur ekki eins skarpar og finna má hjá BMW X5 og Volvo, svo tveir samkeppnisbílar séu nefndir. Þegar loftpúðafjöðrunin er í hæstu stöðu (og ríflega 30 cm eru undir lægsta punkt) virkar bíllinn dálítið eins og á stultum. Útlit Touaregsins vekur minna umtal og deilur en útlit Porsche-bílsins.

Þessum bílum er stefnt í samkeppni við þá lúxusjeppa sem fyrir eru og eru stundum kallaðir forstjórajeppar. Sá markaður hefur verið að breytast mikið á undanförnum árum en sjálfsagt er ekki á neinn hallað þótt bent sé á stöðu Landcruiser 100 jeppans sem meðal annars hefur notið ákveðinnar stærðarstöðu. Það er hins vegar dálítið merkilegt hve stórir þessir nýju lúxusjeppar eru og það á við um Touareg. Rýmið er einfaldlega ríflegt í bílnum en eigi að síður hefur maður það alls ekki á tilfinningunni að maður sitji í jeppa. Sætin eru jafnþægileg og í fólksbílum og vinnuumhverfi ökumanns minnir meira á fólksbíl en jeppa. Þetta er í hnotskurn sú stórkostlega nýbreytni sem fylgir jeppum sem þessum.


Sídrif er málið

- Og svo eru það auðvitað aksturseiginleikarnir. Aflið er flutt út til hjólanna í gegnum sídrif. Það veitir mikið öryggi og eykur aksturseiginleika bílsins og gerir hann þar að auki notendavænni fyrir þá sem ekki eru allajafna vanir jeppum í akstri. Nú finnast auðvitað harðsvíraðir jeppamenn sem kvarta yfir skorti á millikassa en þeir VW-menn fara eins nálægt því og hægt er að leysa slíkt. Aflflæði til drifhjólanna fer um millikassa, sem er staðalbúinn lækkunargír fyrir akstur á vegleysum, og þaðan um mismunadrif á fram- og afturás. Til viðbótar er hægt að læsa mismunadrifi á afturás.

Við venjulegar aðstæður er vélaraflinu jafnað 50:50 til fram- og afturása. Um leið á að vera tryggt að ef eitt hjól missir veggrip, t.d. vegna vatnsfleytingar eða bleytu á annarri hlið akbrautarinnar, svo dæmi sé tekið, þá sendir fjöldiskalæsingin á miðmismunadrifinu aukið afl (allt að 100%) til viðkomandi hjóla til að gefa meira veggrip. Rafdrifin hemlunarstýring (EDL = Electronic Differential Lock) aðstoðar við afldreifinguna. Útkoman er að aldrifið eykur aksturseiginleika og virkt öryggi. Í tíðarfarinu undanfarið gafst t.d. gott tækifæri til að reyna hann við bleytuaðstæður þar sem rásirnar fylltust af vatni. Bíllinn vann sig fullkomlega í gegnum það og missti aldrei grip. Með spólvörnina á er þessi bíll gífurlega öruggur.


Eins og áður segir er bíllinn ákaflega þægilegur að innan þó að reyndar megi spyrja sig að því hvort ekki sé nóg að gert með þeirri lýsingu sem bílinn hefur að innan. Mælaborðið verður nánast eins og jólatré en án efa eru margir ánægðir með það.

Sigurður Már Jónsson, október 2003


VW Touareg R5 TDI í stuttu máli


Vél: 2,5 lítra fimm strokka TDI

Hestöfl/sn. 174 hö

Snúningsvægi/sn. 400Nm við 3200 sn/mín.


Hámarkshraði 206

Eigin þyngd 2214 kg

Heildarþyngd 2945 kg

Lengd 4754 mm

Breidd 1928 mm

Hæð 1726 mm

Hjólahaf 2855 mm

Veghæð 237 mm / án loftpúðafjöðrunar

Beyjuradíus 5,8 m

Farangursrými 1570/555

Grunnverð 5.500.000
Miðvikudagur, 05. maí 2004 - 16:16
MSN Messenger Display Pictures
Nýjar umsagnir
Suzuki SX4
Kia ceed
Toyota Hilux
Suzuki Alto
Suzuki Kizashi
Mercedes-Benz B 180 NGT
Toyota Land Cruiser 150
Lexus RX 450h
Chevrolet Cruze
Chevrolet Aveo
Audi Q5
Toyota Urban
Golf VI Trendline
Subaru Forester
Chevrolet Captiva