|
|
|
|
|
|
 |
|
|
|
|
|
Algeng skammstöfun sem stendur fyrir 'Double OverHead Camshaft' sem merkir tvöfaldur, yfirliggjandi knastás. |
|
|
|
|
 |
|
|
|
|
|
 |
|
| :: umsagnir |
|
|
Í stuttu máli:
BMW 545i er án efa einhver besti bíll sem einn metnaðarfyllsti bílaframleiðandi heims hefur sent frá sér |
|
Tilvitnanir:
"BMW 545i, sem undirritaður fékk til prófunar á dögunum, er einhver magnaðasti akstursbíll sem hann hefur ekið. Hann er nógu stór og ríkulega búinn til þess að gegna hlutverki viðhafnarbíls (límósínu), en nægilega lítill samt til þess að glata ekki of miklu af sportlegum eiginleikum. Á haustdögum 2003 fékkst til prófunar 530i með þriggja lítra, 231 hestafls vélinni. Þótt þetta sé fullkomlega viðunandi vél í þennan bíl er hún samt bara eins og kettlingur miðað við öskrandi ljónið undir hlífinni á 545i."
Guðjón Guðmundsson í Morgunblaðinu 3. mars 2004. |
|
|
Umsögnin:
BMW 545i er án efa einhver besti bíll sem einn metnaðarfyllsti bílaframleiðandi heims hefur sent frá sér. Bíllinn er rjómakakan ofan á nýju 5-línuna sem hefur lukkast mjög vel í öllu tilliti og þær gagnrýnisraddir sem heyrðust á útlitið bílsins hafa smám saman þagnað. Vissulega var forverinn fallegur en þegar aðdáendurnir venjast nýja bílnum taka þeir hann einnig í sátt. 5-línan er með heldur þyngri og hvassari línur en áður í stíl við þær breytingar sem átt hafa sér stað undanfarið á bílaflota BMW. Þessi hönnun felur það hins vegar vel að bíllinn er lengri en eldri gerðin (4841 mm) sem meðal annars felur í sér að fótarými farþega afturí eykst og betra rými verður fyrir farangur og auðveldara að koma honum fyrir. Þetta skiptir að sjálfsögðu miklu fyrir notagildi hans en þetta var það sem maður heyrði helst kvartað yfir.
Að fá tækifæri til að aka slíkum bíl eru forréttindi. Áður hafði undirritaður prófað 530i með þriggja lítra vélinni en 545i bíllinn er sá öflugasti í línunni. Hann er með átta strokka, 4,4 lítra vél með Valvetronic-vélstjórnunarbúnaði, sem breytir opnunartíma á loftinntaksventlunum í takt við snúning vélarinnar og skilar 333 hestöflum til afturhjólanna. Bíllinn hefur hröðun upp á 5,8-5,9 sekúndur úr 0 í 100 km. og hámarkshraði er gefin upp 250 km/klst. Hámarkstog í vélinni er 450 Nm þannig að þetta er sannarlega áhrifamikill fólksbíll. Bíllinn vegur um1,6 tonn en reyndar er það að segja að með markvissri notkun á áli í bílnum hefur tekist að gera hann 75 kg. léttari en forverann þó lengd, breidd og hæð sé meiri. Með fylgir sex þrepa Steptronic sjálfskipting með handskiptivali sem rennir bílnum ljúflega í gegnum gíranna. Þegar bíllinn er þaninn upp finnst ekki fyrir skiptingunni og varla hægt að finna að hún haldi aftur af honum á neinn hátt.
iDrive kerfið umdeilt
Það þarf auðvitað ekki að hafa mörg orð um búnað BMW 545i. Bíllinn er búinn iDrive stjórnkerfi sem einnig er hægt að fá raddstýrt. Þetta kerfi birtist fyrst í 7-línunni en hefur verið dálítið umdeilt enda nokkuð flókið. Með nokkuri yfirlegu ætti þó að vera hægt að ná ágætum tökum á því en í gegnum það er hægt að stjórna öllum búnaði bílsins, svo sem hljómtækjum, loftræstikerfi og síma. Einnig er hægt að stilla hita í sætum og ýmislegt tilfallandi. Ætlun BMW með kerfinu var að fækka stjórnhnöppunum og auka á stíl bílsins en erfitt er að sjá að það hafi fyllilega tekist. Vissulega er bíllinn snyrtilegur að innan, mikil alúð lögð við efnisval og frágang en persónulega hefði ég viljað sjá betur á mæla. Sætin eru afskaplega þægileg og hægt að stilla á alla kannta með rafmagnsbúnaði. Meira að segja hauspúðinn er hreyfður með rafmagni. Glasahöldurum er hugvitsamlega komið fyrir og armpúði bílstjórans hreyfanlegur svo að lítið fer fyrir honum. Búnaður fyrir hitun og kælingu sæta fylgir.
Einnig er bíllinn í Sportútfærslunni (sem hér var prófuð) búin virkri framstýringu (active front steering) sem gefur mjög skemmtilega tilfinningu fyrir stýrinu. Búnaðurinn gerir það að verkum að sáralítið þarf að hreyfa stýrið til að stýra bílnum sem virkar sérlega vel þegar lagt er í stæði eða keyrt í þrengslum. Þetta mun einnig koma sér vel ef elgur hleypur fyrir bílinn! Þá minnkar beyjuradíus bílsins einnig nokkuð fyrir vikið. Mjög fljótlegt er að venjast stýrinu en það spillir -- mann langar helst ekki að hverfa til gömlu gerðarinar aftur. Í hægum akstri er stýringin í hlutföllunum 10:1 en þar sem stýrið er hraðnæmt eykst hlutfallið í hraðakstri upp í 18:1.
Einstakur búnaður
Búnaður bílsins er einstakur enda má segja að fyrir þær milljónir sem hann kostar vilji þú fá fullbúinn bíl. Grunnverð er 7.690.00 krónur en reynsluakstursbíllinn var í kringum 9 milljónir. Bíllinn er vel búinn, klæddur leðri í bak og fyrir, xenon-ljósum sem fylgja beygjunni og regnskynjari er í framrúðunni. Hljómtækin eru líka með ágætum. Sóllúga fylgir þó ekki reynsluakstursbílnum en hún gefur bílnum óneitanlega skemmtilegri birtu, nokkuð sem honum veitir ekki af. Sjónvarp er hægt að fá sem aukabúnað.
BMW 530 hefur komið vel út í samanburði við Audi A6 og E-gerðina af Benz. Í erlendum bílablöðum hefur verið farið einstaklega lofsamlegum orðum um hann enda tímamótabíll að mörgu leyti. Það er staðreynd að maður finnur varla fyrir stærð hans og hann hefur mjög sportlega eiginleika í alla staði. Bíllinn kemur á 18 tommu felgum og veggripið er einstakt. Bremsukerfið frábært og stöðugleiki bílsins góður þrátt fyrir að 333 hestöfl séu að hamast á afturhjólunum. Því er fyrst og fremst að þakka háþróuðu spólvarnar- og veggripsstýringakerfi BMW; DSC og DTC.
Sigurður Már Jónsson, apríl 2004 |
|
| Þriðjudagur, 04. maí 2004 - 18:33 |
|
|
 |
|
|
|