billinn.is - íslenski bílavefurinn
  Mitsubishi Colt 2005   Mercedes-Benz A150 2005   Subaru B9 Tribeca 2005
fréttir
umsagnir
greinar
spurt/svarað
tenglar
lánareiknivél
Orðabókin
Undirstýring
Þegar framendi bílsins leitar út úr beygju.
:: umsagnir
Dýr lúxusjepplingur
- mikill búnaður í boði
Í stuttu máli:
Reynsluakstur á BMW X3 sýnir að skilin milli sportbíls og jepplinga eru að verða heldur óljós en þegar horft er til þess að reynsluakstursbílinn kostaði um 7,5 milljónir króna hljóta menn að spyrja sig í hvaða flokki þessi bíll er.
Tilvitnanir:
"Þessi bíll er sem draumur fyrir þá sem hafa gaman af því að keyra. Þarna fer saman frábær vél með öflugu upptaki og mikilli vinnslu, mögnuð sjálfskipting og svo þessi fullkomnun í undirvagni sem gerir mönnum kleift að fara út á ystu brún í akstri án þess að vera fífldjarfir. Fjöðrunin er stíf án þess að vera höst og bíllinn er alltaf eins og límdur við veginn. Reyndar minna aksturseiginleikarnir meira á BMW X5 en 3-línuna, því bíllinn er auðvitað hábyggðari en fólksbílarnir og fjöðrunin lengri."

Guðjón Guðmundsson í Morgunblaðinu 18. febrúar 2004
Kostir:
Búnaður
Tækni
Akstursgæði
Efnisnotkun
Gallar:
Verð
Frágangur er í hæsta gæðaflokki.
Frágangur er í hæsta gæðaflokki.
Umsögnin:
BMW X3 er fyrsti lúxusjeppinn í flokki smærri jeppa segir umboðsaðili BMW hér á landi óhikað en flokkun BMW X3 er ekki eins einföld og maður gæti haldið. Þegar horft er til þess að reynsluakstursbílinn kostaði um 7,5 milljónir króna hlýtur menn að spyrja sig í hvaða flokki þessi bíll er. Það er hins vegar rökrétt framhald á innkomu BMW inn á jeppamarkaðinn að koma með X3 í kjölfar sigurgöngu X5 jeppans. - Og rétt eins og í fólksbílunum þá er ætlunin að koma með jeppa á grunni 7-línunnar þannig að BMW ætti innan tíðar að geta boðið upp á mjög breiða línu í jeppaflokki. Þannig verða allir jepparnir byggðir á grunni fólksbílalínu félagsins sem getur fært því nokkra hagkvæmni í hönnun undirvagns og fleiri þátta bílsins. Bílaaðdáendur fá svo mjög skemmtilega og breiða línu ólíkra bíla.

Óhætt er að segja að nokkur eftirvænting hafi ríkt eftir komu X3 hér á landi þegar spurðist út að BMW ætlaði að koma inn í jepplingaflokkinn. Vissulega gerðu menn sér grein fyrir að bíllinn yrði án efa í dýrari kanntinum en eigi að síður kom verðið á óvart. Minnsti bíllinn, með 2,5 lítra 192 hestafla vél, kostar frá 4.790.000 krónur og bíll með Sport-pakkanum kostar rúmar 6 milljónir eða nálægt grunnverði X5 bílsins. Þetta er verulega hærra en menn gerðu sér vonir um. Um gæði bílsins þarf hins vegar ekki að efast, hann stóð undir öllu því sem fyrir hann var lagt og gott ef hann var ekki heldur snarpari og liprari en stóri bróðir. Kaupendur verða hins vegar að gera upp við sig hvort það réttlæti verðmismuninn.


Er til samanburðarhópur?

- Og hver er samanburðarflokkurinn? Lexus RX300 dettur manni snemma í hug og jafnvel Freelander. Hvað varðar stærð gæti jafnvel Santa Fe eða XTrail komið til greina en vissulega tekur X3 bíllinn þeim fram í búnaði og akstursgæðum, nema þá kannski Lexusnum sem er einnig heldur stærri. Að hluta verður hann að teljast í eigin flokki en gera má ráð fyrir að samkeppnisaðilarnir svari þessu, í það minnst er Porsche með jeppling á teikniborðinu en ekki hefur frést af áformum Benz.

Hér er búið að hanna lúxusbíl, það er nokkurnveginn sama hvað er skoðað, efnisval eða akstursgæði. Reynsluakstursbílinn var búinn 3ja lítra V6 vél. Hann var sjálfskiptur með handskiptivali, búinn leðri, sóllúgu og rafstillingum og minni í sæti. Þá var í honum sex diska magasín og fjölrofastýri sem gerði þér kleyft að stýra flestu þaðan. Bíllinn var búinn sjö tommu skjá og sjónvarpi sem sést mjög vel í. Það slekkur á sér þegar keyrt er af stað, af umhyggju fyrir öryggi ökumanns. Það er eðli slíkra bíla að það er nánast hægt að fá hvað sem er í hann, spurningin bara hvað kaupandinn er tilbúinn að borga.

40 bílar í sölu á árinu

Ljóst er að mikil eftirvænting hefur verið eftir þessum bíl og víða erlendis mun biðtími eftir nýjum X3 fyrst um sinn verða 6-12 mánuðir en hér á landi hefur B&L lofað að afgreitt þá nokkuð hratt en umboðið hefur tryggt sér 40 bíla á þessu ári. Það er ljóst að tengingin við Ísland er sterk en Ísland hefur verið í lykilhlutverki í öllum auglýsingum fyrir X3 jeppann. Blaðaauglýsingar sem birtast munu um allan heim sýna X3 í úðanum frá Skógafossi, á bökkum Jökulsárlóns og í kvöldsólinni við Perluna. Í sjónvarpsauglýsingum sem birtast munu í yfir 200 löndum sést X3 þeysa um undirlendi Suðurlands og beygjurnar í Hvalfirði.

xDrive kerfið

Eins og gefur að skilja er margvíslegur nýr búnaður. Margt höfum við séð í forverunum en eins og í X5 er boðið upp á xDrive kerfið sem BMW hefur lagt mikla áherslu á að kynna í bílum sínum. xDrive er aldrif sem hefur verið þróað sérstaklega af BMW og er ætlað að tryggja hámarks rásfestu og öryggi jafnvel við erfiðustu aðstæður en kerfið er keyrt með DSC kerfinu. Með þessu kerfi er BMW að reyna að koma í veg fyrir að ökumenn lendi í að yfir og undirstýra bílnum en kerfinu er ætlað að skynja yfirstýringu og undirstýringu áður en af þeim verður til fulls. Kerfinu er ætlað að grípa inní og hindra ferlið með því að endurdeila drifaflinu, til aftursöxuls við undirstýringu og til framöxuls við yfirstýringu.


Vel heppnuð hönnun

Undirrituðum hefur ávallt þótt hönnun X5 vel heppnuð og vissulega má segja það sama um þennan bíl þó hann sé ekki eins kraftalegur á að líta. Línurnar eru heldur bogadregnari og hlutföllin smærri í sniðum eins og gefur að skilja. Innanrými í bílnum er gott en ég veit ekki hvort hægt er að bjóða þremur fullorðnum í langferð í aftursætinu. Vel fer hins vegar um tvo þar. Bíllinn er 10 sm styttri en X5 bíllinn en munurinn er ekki nema 2,5 sm þegar hjólahafið er metið.

Bíllinn er eins og hugur manns, vélin eins öflug og hugsast getur miðað við stærð og bíllinn snarliggur, nokkurnveginn sama hvað á hann er lagt. Stýrið næmt og gefandi. Hann er ekki með millikassa frekar en X5 þannig að utanvegageta hans mótast af því. Það ætti hins vegar ekki að vera neitt að því að renna á honum upp á skíðasvæðin ef þau skyldu einhverntíma opna!


Sigurður Már Jónsson, mars 2004


Tafla:

BMW X3i Luxus Lexus RX300 Land Rover Freelander SE V6

Vélarstærð/rúmsm. 2.979 2.995 2.497

Hestöfl 231 240 177

Tog/Nm 300 283 240

Eyðsla í bl. akstri l/100 km 11,4 12,2 12,4

Lengd 4,56 4,73 4,42

Eigin þyngd 1.840 1.875 1.562

Veghæð/sm 21,5 19 18,6

Drifkerfi Sídrif Sídrif Sídrif

Verð/kr. 5.850.000 5.300.000 4.350.000



BMW X3 í stuttu máli:

Vél: 3 lítra, sex strokka, 24 ventla

Gírskipting: Fimm þrepa sjálfskipting með handskiptivali

Drifkerfi: xDrive rafeindastýrt fjórhjóladrifkerfi

0-100 km: 7,8 sek.

Hámarkshraði: 210 km.

Lengd: 4565 mm

Breidd: 1853 mm

Hæð: 1674 mm

farangursrými: 480-1.560 lítrar
























Mánudagur, 03. maí 2004 - 21:54
MSN Messenger Display Pictures
Nýjar umsagnir
Suzuki SX4
Kia ceed
Toyota Hilux
Suzuki Alto
Suzuki Kizashi
Mercedes-Benz B 180 NGT
Toyota Land Cruiser 150
Lexus RX 450h
Chevrolet Cruze
Chevrolet Aveo
Audi Q5
Toyota Urban
Golf VI Trendline
Subaru Forester
Chevrolet Captiva