billinn.is - íslenski bílavefurinn
  Ford Focus 2004   VW Touareg 2003   BMW 545i 2004
fréttir
umsagnir
greinar
spurt/svarað
tenglar
lánareiknivél
Orðabókin
DOHC
Algeng skammstöfun sem stendur fyrir 'Double OverHead Camshaft' sem merkir tvöfaldur, yfirliggjandi knastás.
:: fréttir
Tuesday, 30. janúar 2007 - 22:44
Nissan Qashqai mættur
Nissan Qashqai.
Nissan Qashqai.
Þá hefur Nissan teflt fram nýjasta útspili sínu, Nissan Qashqai, en honum er ætlað að herja á borgarjeppamarkaðinn. Sem gefur að skilja eru menn ekki vissir um hvað Nissan hefur fram að færa umfram aðra en samkeppnin er gríðarlega hörð í þessum flokki. Þessi bíll var kynntur fyrir bílablaðamönnum suður á Spáni fyrir skömmu.

Borgarjeppar eða lúxusjeppar (SUV: Sports Utility Vehicles) tilheyra þeim flokki bíla sem stækkar hvað hraðast í Evrópu. Þar er að vænta nýrra bíla frá; Peugeot, Chevrolet, Citroën, Dodge, Ford, Mazda, Renault, Saab, Volvo, Vauxhall, Volkswagen og Nissan. Í raun veit enginn hvar þetta endar en allir bílaframleiðendur heims virðast telja sig þurfa að vera með eins og var rakið í nýlegri grein í breska dagblaðinu Daily Telegraph.

Nissan Qashqai - borið fram "Cashkai" - er þokkalega stór bíll, byggður á undirvagni Nissan Almera og telst því vera í C-flokki bíla, hann er því fremur í jepplingaflokki en flokki lúxusjeppa, skilji yfir höfuð nokkur þessa flokkun. Eins og með aðra borgarjeppa þá gagnrýna menn eyðsluna. Qashqai með 1,6 lítra vél er 96 kg. þyngri en Nissan Almera með 1,5 lítra vél og nokkuð gamlan búnað og þó er hann aðeins með einfalda drifrás. Hann er 36 kg. þyngri en nýrri Toyota Auris. Mengunarhlutfallið (EU Combined fuel consumption) er 42.2mpg. sem sumir telja einfaldlega ekki nóg.

En Nissan Qashqai er talinn hluti af hernaðaráætlun Carlos Ghosn, forstjóra Nissan Renault blokkarinnar, en hann hefur boðað fremur djarfa áætlun inn á borgarjeppamarkaðinn. Þessi áætlun gerir ráð fyrir að Nissan skili sex fjórhjóladrifsbílum inn á evrópskan markað.

"C-flokkurinn er óspennandi og fyrirsjáanlegur, neytendur vilja sjá eitthvað nýtt," sagði Ghosn á síðasta ári, ummæli sem vöktu mikla athygli. Með Qashqai hyggst Ghosn breyta þessu en menn játa að bílar í þessum flokki verða að koma til móts við sjónarmið umhverfisverndarsinnar. Það var líka ætlun Nissan.

Bíllinn þykir skemmtilegur útlits en hann var hannaður í Paddington hönnunarstúdíói Nissan en tæknin kemur frá verinu í Cranfield. Qashqai er að mörgu leyti snotur þó sumir hafi gert athugasemdir við dekkjastærð sem staðalbúnaður.

Hann kostar í Bretlandi 13.499 til 23.249 pund og verður boðinn með 1,6 og 2,0 lítra bensínvélum frá Nissan og 1,5 og 2,0 lítra dísilvélum frá Renault. Til samanburðar má nefna að Toyota RAV4, kostar frá 19.040 pundum. Fiat Sedici, 12,495 pund. Honda CR-V, frá 18,700 pundum og Suzuki SX4, frá 9.999 pundum.

Undanfarin ár hefur Nissan lagt áherslu á að bæta aksturseiginleika bíla sinna og hefur fyrirtækið verið ófeimið við að sækja tækniþekkingu til annarra vegna þess. Qashqai er með þyngdarpunktinn fremur lágt og fjöðrunin þannig uppsett að hann er fremur stífur og stöðugur. Almennt hefur hann fengið gott lof sem akstursbíll.
MSN Messenger Display Pictures
Nýjar fréttir
Volvo S60 til landsins
Nýr coupé frá Benz
Nýr Explorer afhjúpaður
Ný umsögn um Hilux
Tvinnbíll frá Lincoln
Kia með tvo nýja
Mini að stækka
Fiat að koma til baka
Rafmagnaður Golf
20% samdráttur hjá ALP
Tvífari Audi TT
Shelby Mustang rennur út
Ný vél í Audi Q7
Audi A7 Sportback
Nýr X3 á göturnar
Rafmagns Range Rover
Benz eigendur ánægðastir
Nýi Volvo V60 í haust
Fjöldi nýrra umsagna
Nokkrir metan-bílar í boði