|
|
|
|
|
|
 |
|
|
|
| (horsepower) |
|
Mælieining afls. |
|
|
|
|
 |
|
|
|
|
|
 |
|
| :: fréttir |
|
| Tuesday, 27. júlí 2010 - 00:35 |
|
 |
| Nýr Ford Explorer. |
Ford Motors kynnti í dag nýjan Explorer jepa á Facebook og þótti kynningin hafa tekist vel og voru rúmlega 30.000 manns búnir að skrá sig þar fyrir frumsýninguna. Það er ekki að ástæðulausu sem Ford bindur miklar vonir við að hinn nýi Explorer sé vel heppnaður en útlitsbreytingar eru verulegar.
Nýi Ford Explorer jeppinn er mun sparneytnari en eldri kynslóðin, býr yfir betri aksturseiginleikum á vegum sem vegleysum en jafnframt ræður jeppinn yfir fullkomnu fjórhjóladrifskerfi, öryggisbúnaði í hæsta gæðaflokki og miklum lúxus og tæknibúnaði.
Ekki lengur á sjálfstæðri grind
Nýi jeppinn er ekki lengur byggður á sjálfstæða grind og V8 vélin hefur vikið fyrir tveimur sparneytnari vélum, V6 vél sem mun ná um 20% minni eldsneytisnotkun en V6 vél síðustu kynslóðar en einnig 2,0 lítra EcoBoost fjögurra strokka vél sem mun ná um 30% minni eldsneytisnotkun en V6 vél síðustu kynslóðar.
Á heimasíðu Brimborgar segir að óvíst sé enn sem komið er hvenær nýr Ford Explorer mun koma til Íslands en víst er að bíllinn mun höfða til þeirra sem vilja fá alla þá kosti sem sjö manna jeppi býður upp á en jafnframt tryggja sparneytni á við mun minni og léttari bíl. Þá er búist við því að verð Ford Explorer verði samkeppnishæft, sérstaklega á 2,0 lítra bílnum þar sem hann fellur í lægri vörugjaldsflokkinn á Íslandi, 30% á meðan 3,5 lítra bíllinn fer í 45% vörugjaldsflokk.
Við munum fjalla ítarlega um jeppann hér á vefnum á næstunni. |
|
|
 |
|
|
|