billinn.is - íslenski bílavefurinn
  Audi Q7 2006   Kia Sportage 2005   Mercedes-Benz B 180 NGT 2010
fréttir
umsagnir
greinar
spurt/svarað
tenglar
lánareiknivél
Orðabókin
DOHC
Algeng skammstöfun sem stendur fyrir 'Double OverHead Camshaft' sem merkir tvöfaldur, yfirliggjandi knastás.
:: fréttir
Thursday, 22. júlí 2010 - 14:37
Mini að stækka
Mini Countryman.
Mini Countryman.
Mini Countryman hefur verið beðið með talsverðri eftirvæntingu en nú má segja að Mini sé loksins að verða stór! Öll mál eru meiri og stærri en Mini aðdáendur hafa átt að venjast enda bílnum ætlað að útvíkka kaupendahóp Mini og bjóða upp á meiri möguleika en til þessa.

Segja má að það sé mikið að gera hjá Mini núna því um leið og Mini Countryman er kynntur er verið að kynna nýjan Mini eins og sjá má í gagnasafni vefsins.

Óhætt er að segja að það hafi verið aksurseiginleikar og hið óvenjulega útlit sem hafi hrifið kaupendur til þessa en hann hefur lengst af verið seldur í 3 dyra útgáfu. Nú kemur hann hins vegar fimm dyra.

Fimm vélagerðir

Mini Countryman verður boðinn með fimm vélargerðum, þremur bensínvélum og tveimur díselvélum og koma þær úr smiðju BMW sem á Mini nú. Ef við lítum fyrst á bensínvélaranar þá er fyrst til að taka Mini One Countryman sem verður búinn 98 hestafla vél á meðan Cooper útgáfan verður með 122 hestafla vél. Mini Cooper S Countryman verður með 1,6 vél með forþjöppu sem skilar 184 hestöflum.

Ef við lítum á díselvélarnar þá verða þær 90 og 112 hestöfl og toga 215 og 270 Nm frá 1.750 snúningum.

Ekki þorum við að spá í hvað þessi bíll gæti kostað hér á landi.
MSN Messenger Display Pictures
Nýjar fréttir
Askja frumsýnir nýjan Sorento
Sala í ágúst undir væntingum
Ný umsögn um Suzuki SX4
Brimborg boðar lægra verð
25% samdráttur hjá ALP
35 ofurtommur
Allt að 8% verðlækkun hjá Öskju
Toyota lækkar um 3%
Spiegel um Sportage
67 bensínbílum breytt fyrir metan
Gullvængur frá Hyundai!
Dýrkeyptur blæjubíll
Hrósar nýja Dísel-Cayenne
Kia Sportage kemur í haust
Jimny fagnar 40 afmæli
Getur loftkæling valdið heilsuskaða?
Suzuki Swift fær góða dóma
Nýr Morgan Eva GT
Kia Sportage fær hæstu einkunn fyrir öryggi
Tvöföldun metanbíla hér á landi?