|
|
|
|
|
|
 |
|
|
|
|
|
Þegar afturendi leitar út úr beygju. |
|
|
|
|
 |
|
|
|
|
|
 |
|
| :: fréttir |
|
| Thursday, 15. júlí 2010 - 21:44 |
|
 |
| Talsvert er sótt til X1. |
BMW er þessa daganna að kynna nýja kynslóð af X3 sportjepplingi sínum. Bíllinn var fyrst kynntur 2003 og hafði BMW gert ráð fyrir að fá að sitja í um tvö ár að þessari markaðshillu. Staðreyndin var sú að það liðu 5 ár áður en Mercedes Benz og Audi komu með GLK og Q5.
X3 hefur því reynst farsæll í vopnabúri BMW en hann hefur lengst af verið framleiddur í Austurríki. Nú verður hann hins vegar framleiddur í Bandaríkjunum, nánar tiltekið í Spartanbourg í Suður-Karolínu þar sem X5 og X6 eru settir saman.
En nú er semsagt kominn ný kynslóð á göturnar og virðist ætla að vekja lukku en hann er verulega breyttur í útliti og búnaði. Hann hefur lengst um 8 sm (lengjast ekki allir bílar milli kynslóða?). Einnig er hann aðeins breiðari og heldur lægri. Greinilegt er að BMW hyggst fara með bílinn í þá áttina en utanvegageta hans hefur stundum orðið til að ýta við spaugurum.
Við fjöllum nánar um hann hér á næstunni. |
|
|
 |
|
|
|