billinn.is - íslenski bílavefurinn
  BMW X3 2004   Mercedes-Benz A150 2005   Benz B-170 2005
fréttir
umsagnir
greinar
spurt/svarað
tenglar
lánareiknivél
Orðabókin
Yfirstýring
Þegar afturendi leitar út úr beygju.
:: fréttir
Tuesday, 13. júlí 2010 - 00:20
Rafmagns Range Rover
E-Range.
E-Range.
Til þessa höfum við ekki vanist því að tengja Range Rover við vistakstur af nokkru tagi. Nú hefur hins vegar breska fyrirtækið Liberty Electric Cars tekið sig til og búið til rafmagsútgáfu af þessum vinsæla hefðarjeppa og kallar hann að sjálfsögðu E-Range.

- Og þetta þarf ekki að vera svo gleðisnauður akstur því hámarkshraði er um 85 mílur á klukkustund, hann er um 7 sekúndur að ná 60 mílna hraða og E-Range kemst 200 mílur á einni hleðslu. Allt verður þetta að teljast viðunandi.

Þá hefur Liberty Electric Cars verið að þróa byltingarkenndan búnað sem felur í sér að ekki er nauðsynlegt að stinga bílnum í samband til að hlaða hann. Þess í stað er hann keyrðu ofan á nokkurskonar rafhleðsluplötu sem sér um að hlaða hann sjálfkrafa. Þannig getur tekið frá aðeins einni klukkustund upp í þrjár að hlaða bílinn þannig að hægt sé að fara aftur út á vegina.

Mestu munar að rafhlöðurnar sem Liberty Electric Cars er að þróa eiga að endst lengur en áður hefur þekkst eða í allt að 300.000 mílur.
MSN Messenger Display Pictures
Nýjar fréttir
Askja frumsýnir nýjan Sorento
Sala í ágúst undir væntingum
Ný umsögn um Suzuki SX4
Brimborg boðar lægra verð
25% samdráttur hjá ALP
35 ofurtommur
Allt að 8% verðlækkun hjá Öskju
Toyota lækkar um 3%
Spiegel um Sportage
67 bensínbílum breytt fyrir metan
Gullvængur frá Hyundai!
Dýrkeyptur blæjubíll
Hrósar nýja Dísel-Cayenne
Kia Sportage kemur í haust
Jimny fagnar 40 afmæli
Getur loftkæling valdið heilsuskaða?
Suzuki Swift fær góða dóma
Nýr Morgan Eva GT
Kia Sportage fær hæstu einkunn fyrir öryggi
Tvöföldun metanbíla hér á landi?