|
|
|
|
|
|
 |
|
|
|
| (horsepower) |
|
Mælieining afls. |
|
|
|
|
 |
|
|
|
|
|
 |
|
| :: fréttir |
|
| Tuesday, 13. júlí 2010 - 00:07 |
|
 |
| B-Classi frá Benz. |
Engin bílaframleiðandi getur státað af jafn ánægðum viðskiptavinum og Mercedes-Benz. Þetta eru niðurstöðurnar í yfirgripsmikilli rannsókn markaðsrannsóknarfyrirtækisins J.D. Power. Rannsóknin staðfesti að Mercedes-Benz er fremstur í flokki allra bílaframleiðenda í heimi og jafnframt urðu Mercedes-Benz C-línan og CLK efstir í sínum flokkum. Þetta þýðir að eigendur Mercedes-Benz eru ánægðustu ökumennirnir í Þýskalandi.
16.330 ökumenn spurðir
Markaðsrannsóknarfyrirtækið J.D. Power var stofnað árið 1968. Það er með höfuðstöðvar í Los Angeles en starfsemi þess nær út um allan heim. Fyrirtækið kannar með reglulegum hætti ánægju bíleigenda. Í rannsókninni er gengið út frá því að viðskiptavinurinn hafi ávallt rétt fyrir sér. Þetta er annað árið í röð sem könnunin fer fram á veraldarvefnum. Meðal þátttakenda voru 16.330 ökumenn í Þýskalandi sem vottuðu um reynslu sína af bílum sínum. Til þess að vera gjaldgengir í könnuninni þurftu svarendur að hafa átt bíla sína í tvö ár og ekið þeim um 34.000 km á þeim tíma. Samtals höfðu svarendur ekið bílum sínum yfir 500 milljónir kílómetra. Til að ná fram áreiðanlegu yfirliti yfir styrkleika og veikleika hvers bíls var spurt út í þætti eins og gæði, bilanatíðni, útlit og kostnað vegna þjónustu og viðhalds.
Könnun J.D. Power á ánægju bíleigenda er viðurkenndur leiðarvísir þeirra sem hyggjast kaupa sér nýjan bíl. Könnunin náði til yfir 100 bílgerða sem raðað var niður í níu stærðarflokka. Mercedes-Benz reyndist eiga ánægðustu viðskiptavini allra bílaframleiðenda og jafnframt var C-lína og CLK efstir í sínum flokkum.
Afrakstur vinnu
Dr. Joachim Schmidt, yfirmaður í sölu- og markaðsdeild Mercedes-Benz, sagði í tilefni af þessum niðurstöðum að Mercedes-Benz stefndi ávallt að því að gleðja viðskiptavini með framleiðsluvörum sínum en ekki síður með persónulegri og góðri þjónustu. „Það er okkur gleðiefni að við sýnum framfarir á öllum sviðum og á ólíkum markaðssvæðum. Það er engin tilviljun að framúrskarandi þjónusta og gæði, sem viðskiptavinir okkar verða varir við á öllum sviðum, er grundvallaratriði í allri framsetningu á Mercedes-Benz. Niðurstöður J.D. Power eru afrakstur þeirrar vinnu.“ Þetta kemur fram í frétt frá Mercedes-Benz.
Nýjar athuganir sjálfstæðra aðila á sviði markaðsrannsókna um endursöluverð bíla er síðan enn ein skrautfjöðurin í hatt Mercedes-Benz. Fjórar gerðir raða sér í efstu sætin í sínum stærðarflokkum yfir þá bíla sem tapa minnstu af verðgildi sínu. Þetta eru E-, C-, S- og R-línur Mercedes-Benz sem eru þar af leiðandi bestu fjárfestingakostirnir árið 2010. Rannsóknir sýna því að bílar Mercedes-Benz eru hagkvæmasti valkosturinn með besta endursöluverðinu. |
|
|
 |
|
|
|