|
|
|
|
|
|
 |
|
|
|
| (horsepower) |
|
Mælieining afls. |
|
|
|
|
 |
|
|
|
|
|
 |
|
| :: fréttir |
|
| Monday, 01. mars 2010 - 14:23 |
|
Mitsubishi Motors hlaut nýlega umhverfisverðlaunin “Environment Special Grand Prize” fyrir iMiEV, nýja kynslóð rafbíla. Verðlaunin voru afhent á Alþjóðlegu bílahátíðinni í París sem haldin var í 25. sinn í byrjun febrúar.
Mitsubishi i-MiEV var einn af fjórum bílum sem tilnefndir voru til verðlaunanna á grundvelli "verkefna sem horfa til framtíðar fyrir sjálfbærar samgöngur með tilliti til umhverfisverndar eða öryggis". Dómnefndin var skipuð 18 þekktum einstaklingum sem starfa á sviði hönnunar, tísku, bílaframleiðslu og fjölmiðla.
Kiyoshi Teshima, forstjóri Mitsubishi Motors í Frakklandi, tók við verðlaununum fyrir hönd Mitsubishi Motors. "Okkur er sýndur mikill heiður með þessum verðlaunum. Þau munu verða verkfræðingum okkar hvatning til þess að halda enn frekar á lofti því frumkvöðlastarfi Mitsubishi að auka vinsældir bíla með nýjum orkugjöfum," sagði Teshima.
Mitsubishi i-MiEV hefur verið fáanlegur í Japan síðan í júlí á síðasta ári. Engin koltvísýringslosun fylgir notkun Mitsubishi i-MiEV og lágmarkslosun verður við framleiðslu hans. Af þeim sökum er i-MiEV mikilsvert framlag til loftslagsverndar í heiminum.
Ráðgert er að i-MiEV komi á markað í Evrópu fyrir árslok 2010. Hleðslukerfi bílsins verður samhæft evrópskum heimilisstöðlum, 220/240V. Reiknað er með að það taki að hámarki sjö klukkustundir að fullhlaða rafgeymana.
Alþjóðlega bílahátíðina var haldin í fyrst sinn árið 1986. Tilgangur hennar er að vekja athygli á hæfileikaríkum hönnuðum, listamönnum, mönnum og konum sem eru í fararbroddi framþróunar innan bílaiðnaðarins.
|
|
|
 |
|
|
|