|
|
|
|
|
|
 |
|
|
|
|
|
Þegar afturendi leitar út úr beygju. |
|
|
|
|
 |
|
|
|
|
|
 |
|
| :: fréttir |
|
| Sunday, 28. febrúar 2010 - 15:03 |
|
 |
| Mini Countryman. |
Mini Countryman verður settur í sölu í september næstkomandi en margir aðdáendur Mini hafa beðið eftir bílnum með eftirvæntingu en hann verður fjórði meðlimur Mini-fjölskyldunnar og sá fyrsti sem verður fjögurra dyra. Um leið eykst innra rými bílsins verulega.
One gerðin mun kosta frá 16.000 pundum en hann er 98 hestöfl. Verðið hækkar upp í 20.810 pund fyrir hin fjölhæfa Cooper S sem verður 184 hestöfl. Hér er átt við verð í Bretlandi, því miður.
Fyrir í fjölskyldunni var þriggja dyra Mini, blæjubíll og Clubman. Nú kemur fjórhjóladrifið til sögunar sem verður líklega að vera til marks um hve vel hefur tekist til með að endurvekja þennan ágæta bíl en framleiðslu hans var hætt um skeið. Mikið verður lagt upp úr sportlegum eiginleikum bílsins sem kemur með glerþaki, beygjunæmum ljósum og 19 tommu felgum. |
|
|
 |
|
|
|