billinn.is - íslenski bílavefurinn Frumherji
  Chevrolet Captiva 2008   Volvo V50 2.0D Turbo dísel 2005   VW Golf 2004
fréttir
umsagnir
greinar
spurt/svarað
tenglar
lánareiknivél
Orðabókin
DOHC
Algeng skammstöfun sem stendur fyrir 'Double OverHead Camshaft' sem merkir tvöfaldur, yfirliggjandi knastás.
:: fréttir
Sunday, 28. febrúar 2010 - 13:18
Breska stjórnin styrkir umhverfisvæna bíla
 i-Miev.
i-Miev.
Breska ríkisstjórnin hefur ákveðið að veita hverjum þeim sem kaupir umhverfisvænan bíl 5000 punda styrk eða sem nemur einni milljón króna. Þessi nýju lög (Plug-in Car Grant) eiga að taka gildi í janúar á næsta ári. Er ætlunin að verja sem svarar 230 milljónum punda í átakið fyrsta árið.

Þessari ákvörðun hefur verið tekið vel enda margir framleiðendur tilbúnir með bíla sem falið geta undir þessi ákvæði.

Þannig má nefna að Mitsubishi bindur miklar vonir við fjögurra sæta rafmagnsbílinn i-Miev sem fer í sölu 1. janúar næstkomandi. Gert er ráð fyrir að hann kosti um 25 þúsund pund eða um 5 milljónir króna. Með ráðstöfunum ríkisstjórnarinar hefur kostnaðurinn verið lækkaður niður í fjórar milljónir. Þannig er ljóst að aðgerðir stjórnarinnar geta lækkað verð á rafmagnsbílum um 20 til 25%.

David Martell, framkvæmdastjóri hjá Electric Car Corporation, en þeir selja nú þegar rafmagnsbílaútfærslu af Citroën C1, sagði í samtali við The Daly Telegraph að þetta væri jákvætt skref til þess að örva rafmagnsbílamarkaðinn.

Nissan hyggst setja rafmagnsbílinn Leaf á markað í mars 2011.
MSN Messenger Display Pictures
Nýjar fréttir
BMW X1 með fjórhjóladrifi
Hvaða bíll er ódýrastur?
Árekstrafrír bíll?
Bíllækkun áhrif á vísitöluna?
Askja frumsýnir nýjan Sorento
Sala í ágúst undir væntingum
Ný umsögn um Suzuki SX4
Brimborg boðar lægra verð
25% samdráttur hjá ALP
35 ofurtommur
Allt að 8% verðlækkun hjá Öskju
Toyota lækkar um 3%
Spiegel um Sportage
67 bensínbílum breytt fyrir metan
Gullvængur frá Hyundai!
Dýrkeyptur blæjubíll
Hrósar nýja Dísel-Cayenne
Kia Sportage kemur í haust
Jimny fagnar 40 afmæli
Getur loftkæling valdið heilsuskaða?