|
|
|
|
|
|
 |
|
|
|
|
|
Þegar framendi bílsins leitar út úr beygju. |
|
|
|
|
 |
|
|
|
|
|
 |
|
| :: fréttir |
|
| Saturday, 27. febrúar 2010 - 15:41 |
|
 |
| Lexus CT200h |
Þrátt fyrir að árið sé búið að vera heldur leiðinlegt hjá Toyota og Lexus hyggjast menn ekki leggja upp árarnar. Lexus hyggst þannig ráðast inn á nýjan markað með Lexus CT200h bílnum og er honum ætlað að keppa við bíla eins og Audi A3 og BMW Ásinn. Lexus CT200h er þó bæði hærri og breiðari en þesir ágætu bílar en um 1000 eintök seldust af hvorum um sig á síðasta ári í Noregi að því er VG greinir frá.
Þetta er reyndar dálítið merkileg þróun að lúxusbílaframleiðendurnir skuli telja sér hag í að fara svona langt niður í smábílamarkaðinn sem stundum er kenndur við vinsælasta bílinn í þeim hópi eða Golfinn en staðreyndin er sú að margir vilja hafa flota sinn frá sama merki.
Lexus CT200h verður frumsýndur á bílasýningunni sem hefst í Genf 2. mars. nk. Bíllinn er byggður á hugmyndabílnum LF-Ch en ljóst er að nokkrar breytingar hafa orðið sem sjást meðal vel á afturhurðum bílsins.
Lexus CT200h er 4320 mm langur og 1765 mm á breiddina. Hæðin er 1430 mm. Farangursrýmið er 345 lítrar en 700 lítrar þegar sætisbökin hafa verið felld niður.
|
|
|
 |
|
|
|