billinn.is - íslenski bílavefurinn
  Kia Sportage 2005   Lexus RX 450h 2010   Range Rover Sport Supercharged 2005
fréttir
umsagnir
greinar
spurt/svarað
tenglar
lánareiknivél
Orðabókin
DOHC
Algeng skammstöfun sem stendur fyrir 'Double OverHead Camshaft' sem merkir tvöfaldur, yfirliggjandi knastás.
:: fréttir
Monday, 15. febrúar 2010 - 16:58
Ný gerð Touareg kynnt
VW Touareg
VW Touareg
Það sveif menningarlegur andi yfir vötnum þegar ný gerð lúxusjeppans VW Touareg var kynnt í München í síðustu viku. Kynningin fór fram í Pósthöllinni í München að viðstöddum 600 gestum. Þar á meðal var sigurliðið í Dakar rallinu, Carlos Sainz and Lucas Cruz sem einmitt óku Touareg rallbíl til sigurs. Ný gerð Touareg og nýr Touareg Hybrid tvinnbíll véku aldrei af sviðinu.

Það er von að mikið er haft við þegar ný kynslóð Touareg er kynnt. Bíllinn hefur nú þegar selst í 500.000 eintökum og hlotið mikið lof fjölmiðla.

Kvöldið var að sjálfsögðu helgað nýja lúxusjeppanum frá VW. En krydd í tilveruna voru heimsfrægir listamenn sem lögðu sitt af mörkum til þessarar hátíðlegu stundar. Hinn heimsþekkti fiðluleikari David Garrett hlaut mikið lof fyrir sitt framlag og veislustjóri var leikarinn Thomas Kretschmann sem flaug alla leið frá Hollywood til að taka þátt í kynningunni. Meðal annarra viðstaddra voru þekktir fjölmiðlamenn, atvinnurekendur og stjórnmálamenn. Sérfræðingar frá Volkswagen upplýstu gesti um nýja Touareg lúxusjeppann.

„Nýr Touareg er tæknilega fullkomnasti bíll Volkswagen frá upphafi. Allir hjá VW hafa unnið þrotlausa vinnu við þetta verkefni. Og við getum verið stolt af afrakstrinum,“ sagði Dr. Harald Ludanek, yfirmaður ökutækjaþróunar hjá Volkswagen.


Hybrid útfærsla Touareg er 208 kg léttari en hefðbundna gerðin og eyðir hún 20% minna eldsneyti. Bílnum er hægt að aka á allt að 50 km hraða eingöngu á rafmagni og er þá koltvísýringslosunin engin.


Sala hefst á nýja Touareg lúxusjeppanum og nýja Touareg Hybrid tvinnbílnum í Þýskalandi á næstu vikum.

MSN Messenger Display Pictures
Nýjar fréttir
BMW X1 með fjórhjóladrifi
Hvaða bíll er ódýrastur?
Árekstrafrír bíll?
Bíllækkun áhrif á vísitöluna?
Askja frumsýnir nýjan Sorento
Sala í ágúst undir væntingum
Ný umsögn um Suzuki SX4
Brimborg boðar lægra verð
25% samdráttur hjá ALP
35 ofurtommur
Allt að 8% verðlækkun hjá Öskju
Toyota lækkar um 3%
Spiegel um Sportage
67 bensínbílum breytt fyrir metan
Gullvængur frá Hyundai!
Dýrkeyptur blæjubíll
Hrósar nýja Dísel-Cayenne
Kia Sportage kemur í haust
Jimny fagnar 40 afmæli
Getur loftkæling valdið heilsuskaða?