billinn.is - íslenski bílavefurinn
  Ford Focus 2,0 2005   Audi Q5 2009   BMW 545i 2004
fréttir
umsagnir
greinar
spurt/svarað
tenglar
lánareiknivél
Orðabókin
Yfirstýring
Þegar afturendi leitar út úr beygju.
:: fréttir
Monday, 01. febrúar 2010 - 11:40
Innköllun á Toyotabifreiðum
Toyota í Evrópu hefur ákveðið að kalla inn 8 gerðir af Toyota bifreiðum vegna mögulegs vandamáls í eldsneytisgjöf.
Bifreiðarnar sem um ræðir og framleiðslutími þeirra er sem hér segir:
• AYGO Febrúar 2005 til ágúst 2009
• iQ Nóvember 2008 til nóvember 2009
• Yaris Nóvember 2005 til nóvember 2009
• Auris Október 2006 til 5. janúar 2010
• Corolla Október 2006 til desember 2009
• Verso Febrúar 2009 til 5. janúar 2010
• Avensis Nóvember 2008 til desember 2009
• RAV4 Nóvember 2005 til nóvember 2009

Ekki er enn ljóst hver heildarfjöldi innkallaðra bifreiða í Evrópu verður en talið er að kalla þurfi inn allt að 1,8 milljón bíla. Vandamálið hefur hvorki komið upp í öðrum gerðum Toyota né Lexus bifreiðum segir í tilkynningu.

Vandamálið getur komið upp vegna þess að um slit er að ræða í eldsneytisgjöfinni. Við ákveðnar umhverfis- og notkunaraðstæður getur þetta slit orðið til þess að núningur í eldsneytisgjöfinni eykst sem verður síðan til þess að af og til getur orðið erfiðara að stíga á bensíngjöfina, hún lyftist hægar til baka í upphafsstöðu eða í versta falli getur hún orðið föst að einhverju leyti í inngjafarstöðu.

„Toyota hefur alltaf lagt ofurkapp á að tryggja öryggi viðskiptavina sinna. Við munum því gera allt sem í okkar valdi stendur til að hefja þær fyrirbyggjandi aðgerðir sem félagar okkar hjá Toyota í Evrópu hafa boðað sem allra fyrst,“ segir Úlfar Steindórsson, forstjóri Toyota á Íslandi. „Ég vil ítreka gagnvart viðskiptavinum okkar að tilvik sem þessi eru mjög sjaldgæf. Einungis hefur verið tilkynnt um 26 slík tilvik í Evrópu og Toyota í Evrópu hefur ekki fengið neinar fregnir af slysum tengdum þeim. Ég hvet hinsvegar eindregið þá sem hafa áhyggjur af virkni eldsneytisgjafar í bílum sínum að hafa samband við næsta þjónustuaðila Toyota.“

Lausn á ofangreindu vandamáli liggur fyrir hjá Toyota í Evrópu og er verið að leggja lokahönd á undirbúning og skipulag innköllunarinnar. Áætlað er að kalla þurfi inn yfir 5.000 bíla á Íslandi. Haft verður samband við eigendur viðkomandi bíla fljótlega og þeir beðnir að koma með bílinn til viðurkennds þjónustuaðila Toyota þeim að kostnaðarlausu.

Ofangreint vandamál mun ekki hafa áhrif á núverandi framleiðslu Toyotabifreiða þar sem nýr búnaður er notaður í þá bíla sem nú eru framleiddir.
MSN Messenger Display Pictures
Nýjar fréttir
BMW X1 með fjórhjóladrifi
Hvaða bíll er ódýrastur?
Árekstrafrír bíll?
Bíllækkun áhrif á vísitöluna?
Askja frumsýnir nýjan Sorento
Sala í ágúst undir væntingum
Ný umsögn um Suzuki SX4
Brimborg boðar lægra verð
25% samdráttur hjá ALP
35 ofurtommur
Allt að 8% verðlækkun hjá Öskju
Toyota lækkar um 3%
Spiegel um Sportage
67 bensínbílum breytt fyrir metan
Gullvængur frá Hyundai!
Dýrkeyptur blæjubíll
Hrósar nýja Dísel-Cayenne
Kia Sportage kemur í haust
Jimny fagnar 40 afmæli
Getur loftkæling valdið heilsuskaða?