billinn.is - íslenski bílavefurinn
  Chrysler 300 C 2006   BMW 545i 2004   Volvo S80 V8 2006
fréttir
umsagnir
greinar
spurt/svarað
tenglar
lánareiknivél
Orðabókin
DOHC
Algeng skammstöfun sem stendur fyrir 'Double OverHead Camshaft' sem merkir tvöfaldur, yfirliggjandi knastás.
:: fréttir
Sunday, 24. janúar 2010 - 14:41
Volvo C30 rafbíll á næsta leiti
Volvo C30 BEV.
Volvo C30 BEV.
Volvo sýndi á dögunum á alþjóðlegu bílasýningunni í Detroit hugmyndabíl af gerðinni Volvo C30 BEV. Þetta er önnur kynslóð Volvo af hugmyndarafbílnum C30 BEV en bíllinn var frumkynntur í haust. Bíllinn er fullkomlega nothæfur og hefur Volvo tekist að halda öllum megin einkennum hins sportlega Volvo C30 bíls segir í frét á heimasíðu Brimborgar.


Kemst 150 km á hleðslunni

Helsta vandamál rafmagnsbíla hefur verið mikil málamiðlun hvað aksturseiginleika og pláss varðar en ekki síður afar takmörkuð langdrægni miðað við hefðbundna dísil- eða bensínbíla. Volvo hefur tekist að leysa vandann að miklu leyti og t.d. er innanrými bílsins nánast óbreytt og farangursrýmið er prýðilegt. Þá er langdrægni bílsins með besta móti en Volvo segir að bíllinn muni komast um 150 km á hleðslunni sem er yfirdrifið fyrir dæmigerðan, daglegan borgarakstur og meira til.

Bíllinn er Volvo afar mikilvægur því næsta skref er að fara með flota af bílum í raunprófanir næstu tvö árin en þá verður gögnum safnað saman, nauðsynlegar breytingar gerðar og bíllinn sniðinn að þeim kröfum sem gerðar eru í daglegu lífi. Bíllinn mun svo koma á markað 2012-2013 í endanlegri útgáfu.

Tæknilega mikill munur

Rafbíllinn mun verða einn öruggasti rafbíll sem völ er á þegar hann kemur á markað lofar Volvo. Útlitslega mun bíllinn þó verða mjög líkur hefðbundnum C30 en að innan verður sjáanlegur munur, sérstaklega í mælaborðinu þar sem ökumenn munu fyrst og fremst sjá mælitæki fyrir hraða og orku. Einnig munu önnur mælitæki verða sjáanleg sem snúa að raforkubúi bílsins sem leysa af hólmi hefðbundna mæla eins og snúningshraðamæli og bensínmæli.
MSN Messenger Display Pictures
Nýjar fréttir
BMW X1 með fjórhjóladrifi
Hvaða bíll er ódýrastur?
Árekstrafrír bíll?
Bíllækkun áhrif á vísitöluna?
Askja frumsýnir nýjan Sorento
Sala í ágúst undir væntingum
Ný umsögn um Suzuki SX4
Brimborg boðar lægra verð
25% samdráttur hjá ALP
35 ofurtommur
Allt að 8% verðlækkun hjá Öskju
Toyota lækkar um 3%
Spiegel um Sportage
67 bensínbílum breytt fyrir metan
Gullvængur frá Hyundai!
Dýrkeyptur blæjubíll
Hrósar nýja Dísel-Cayenne
Kia Sportage kemur í haust
Jimny fagnar 40 afmæli
Getur loftkæling valdið heilsuskaða?