|
|
|
|
|
|
 |
|
|
|
|
|
Algeng skammstöfun sem stendur fyrir 'Double OverHead Camshaft' sem merkir tvöfaldur, yfirliggjandi knastás. |
|
|
|
|
 |
|
|
|
|
|
 |
|
| :: greinar |
|
| Wednesday, 28. mars 2007 - 22:56 |
|
 |
| Bíllinn á leiðinni á geymslustað sinn. |
Einn helsti útgjaldaliðurinn við að reka bíl í stórborgum er kostnaðurinn við að geyma þá. Eftir því sem fólki fjölgar í stórborgum nútímans og þær stækka verður rými í miðbæjunum dýrara. Um leið og bílum fjölgar jafnt og þétt verður kostnaðarsamara og erfiðara að geyma þá. Nú kostar um 500 Bandaríkjadali eða um 34 þúsund krónur að geyma bíl í einn mánuð miðbæjum New York, London og Tokyó. Langtímastæði var nýlega selt í London fyrir 40 milljónir króna. Af þessu sést að það liggur við að það sé ódýrara að hafa einkabílstjóra til að keyra sig um.
Lausnin á þessu eru algerlega sjálfvirk bílastæðahús. - Hús sem nýta hvern fermeter og mannshöndin kemur hvergi nærri. Slík hús hafa verið í notkun um alllangt skeið en nú eru menn farnir að sjá að það er nauðsynlegt að hraða uppbyggingu þeirra til að auðvelda fólki að leggja í stórborgunum. Með því að nota vélmenni og sjálvirkan búnað má ná niður kostnaði við rekstur þeirra og þessum búnaði fleygir fram.
Allir ættu að þekkja bílstæðahús og vita að stór hluti af svæði þeirra fer undir rampa og ökusvæði sem nýtast ekki sem stæði. Sömuleiðis þarf húsnæðið að ná tiltekinni hæð svo fólk geti gengið þar um. Ef hægt er að nota þessi svæði fyrir stæði undir bíla má ná verulega aukinni nýtingu á húsunum. Með því að láta vélmenni raða í stæði batnar nýtingin til mikilla muna. Lætur nærri að nýtingarhutfall bílstæðahúsa aukist um helming og því hægt að taka við helmingi fleiri bílum en áður. Þær auknu tekjur sem þannig koma inn gera meira en að tvöfalda tekjurnar.
Þá er einnig vert að geta þess að tjón í bílageymslum sem skapast af því að mislagnir starfsmenn eru að leggja dýrum bílum í þröng svæði hverfa algerlega. Því þarf eigandi bílageymslunnar ekki að standa straum af tjónakostnaði eða öðru slíku. Sömuleiðis er tryggt að ekki aðrir en eigendur bílanna komast í þá og því þarf ekki að óttast þjófnað eða skemdaverk. Þjófnaður á hlutum úr bílunum og á bílunum sjálfum eru því úr sögunni. Það er ekki svo lítill árangur. |
|
|
 |
|
|
|