|
|
|
|
|
|
 |
|
|
|
| (horsepower) |
|
Mælieining afls. |
|
|
|
|
 |
|
|
|
|
|
 |
|
| :: greinar |
|
| Wednesday, 13. september 2006 - 14:16 |
|
Bílaiðnaður í Suður-Kóreu hefur verið í mikilli sókn undanfarinn áratug. Eins og fram hefur komið í tímaritum á borð við Newsweek hafa bílaframleiðendur í Suður-Kóreu náð sama og jafnvel hærra gæðastigi og helstu japanskir bílaframleiðendur.
General Motors, stærsti bílaframleiðandi veraldar, framleiðir Chevrolet-bíla fyrir 90 markaðssvæði í Asíu- og Evrópu í nýlegu iðjuveri í Bupyong, 25 km vestan við höfuðborgina Seoul. GM DAT-bílaverksmiðjan í Bupyong, en flatarmál hennar er tæplega 1 milljón fermetra, er ein sú fullkomnasta í veröldinni. Chevrolet Tosca, sem er hannaður sem dæmigerður „evrópskur bíll’’ og ætlaður fyrir 30 markaðssvæði í Evrópu er hannaður hjá hönnunar- og þróunarmiðstöð GM.
Stærri bíll
Chevrolet Tosca er í flokki sportlegra 4ra dyra fólksbíla af millistærð. Sérstaða hans er áberandi: Hann er stærri en algengustu bílar í sama stærðarflokki, t.d. 17,5 sm lengri og 5 sm breiðari, þ.e. um 7% stærri en Toyota Avensis. Búnaðarstig er jafnframt hærra en fólk á að venjast í þessum stærðar- og verðflokki.
6 sílindra línuvél
Sérstaka athygli vekur að Chevrolet Tosca er fyrsti framdrifni Chevrolet-bíllinn í þessum flokki sem hefur þverstæða 24ra ventla 6 sílindra línuvél. Kostur þess, auk vélarafls, er hagstæð dreifing þunga og einstök gangmýkt. Einungis BMW (langsum-vél) og Volvo (5 sílindra) hafa verið með 5-6 sílindra línuvél fram að þessu). Aðrir keppinautar eru með 4ra sílindra vélar eða V6-vélar. Vélin er hönnuð í þróunarsetri Porsche í Weissach.
20 sm styttri vél
Nýja 6 sílindra Chevrolet-línuvélin er einungis 64,2 sm á lengd. Hún er styttri en sumar 4ra sílindra vélar og um 20 sm styttri en stystu 6 sílindra línuvélar annarra framleiðenda. Bæði blokk og hedd eru úr áli. Stimplarnir ganga í stálslífum sem steyptar eru í álblokkina. Höfuðlegubakkar eru sambyggðir í einu styrktarstykki og pannan myndar styrktarbotn úr álblöndu. 2ja lítra vélin vegur einungis 151 kg.
Sérstök tækni í þéttingu hedds og blokkar gerir kleift að hafa minna bil en ella á milli sílindra. Tveggja lítra vélin (1993 rsm) er með 75 mm stimpla (75,2 mm slaglengd) Sérstaka athygli vekur að fjarlægð á milli lóðréttra sílindra í 2ja lítra vélinni er einungis 83 mm.
Tveir ofanáliggjandi kambásar knýja 4 ventla á hverju brunahólfi með rúlluörmum. Bein innsprautun í hvert þyrilbrunahólf er með tveggja þrepa spíss. Soggrein úr plasti er með stillanlegum skálmum; stýrðu flæði eftir snúningi vélar og viðbragði (inngjöf). Þjöppun er 10,2. Innsprautukerfið er frá Siemens. Vélarfestingar eru vökvafylltar.
Engin tímareim - minni viðhaldsþörf
6 sílindra línuvél er í ákjósanlegu innbyrðis jafnvægi sem þýðir að gangurinn verður áberandi mjúkur og hljóðlátur á öllu snúningssviði vélarinnar. 6 sílindra línuvél fylgir ekki titringur sem er þekkt vandamál í 4ra sílindra vélum og V6-vélum, - vandamál sem krefst flókinna og dýrra lausna enda þekkt að titringur veldur sliti á vélum. Í Chevrolet Tosca er þetta titringsvandamál ekki til staðar.
En fleira stuðlar að því að gera rekstur Chevrolet Tosca hagkvæman. Í Tosca er tímakeðja úr stáli með sjálfvirkum vökvastrekkjara. Tímakeðjuna þarf aldrei að endurnýja. Fyrir hvert kerti er sjálfstætt háspennukefli en kertin eru með þrískauti (Irridium-kerti) sem eiga að endast 160 þús. km.
Allur hjálparbúnaður, svo sem alternator, kæliþjappa, vatnsdæla og vökvastýrisdæla, er á þeirri hlið vélarinnar sem snýr fram og auðveldar það eftirlit og viðhald.
Vélarafl - snerpa - sparneytni
Liður í þróun Chevrolet Tosca voru prófanir á bíl, vél og búnaði við mismunandi aðstæður á sumum heitustu og köldustu stöðum veraldar. Þær prófanir stóðu samfellt í 27 mánuði og var bílunum ekið samanlagt 3 milljónir km. Því til viðbótar hafa 6 sílindra línuvélarnar verið keyrðar undir mismunandi álagi sem nemur 6 milljón km. akstri.
2ja lítra vélin skilar 144 ha hámarksafli við 6400 sn/mín. Hámarkstog er 195 Nm við 4600 sn/mín. Snerpa bílsins með 2ja lítra vélinni er 9,9 sek í 100 km/klst. Hámarkshraði er 207 km/klst. Bensínnotkun er, samkvæmt ECE-mælingu 8,2 lítrar á 100 km að meðaltali í blönduðum akstri (8,9 lítrar með sjálfskiptingu).
Japönsk sjálfskipting
Chevrolet Tosca er boðinn með 5 gíra sjálfskiptingu sem framleidd er af Aisin í Japan (Aisin-Warner er eitt af dótturfyrirtækjum General Motors). Aisin-sjálfskiptingar eru í flestum vandaðri japönskum bílum og eru þekktar fyrir gæði. Skiptingin í Tosca er tölvustýrð með veljanlegu forriti fyrir mismunandi aðstæður og aksturmáta. Velja má handskiptingu, t.d. til að auka lipurð og snerpu þegar ekið er í þéttbýli og mikilli umferð, en þá nægir að snerta hnapp til að skipta upp eða niður (sambærilegt við Tiptronic t.d. í Porsche 911).
Undirvagn og fjöðrun
Fjaðrabúnaður að framan eru McPherson-gormaturnar og gasdemparar með hjólstífum, jafnvægisslá, tannstangarstýri (vökva) og loftkældum diskbremsum. Að aftan er gormafjöðrun með fjölliða upphengju/togstífum, jafnvægisslá, gasdempurum og diskabremsum. Auk 4ra rása ABS-læsivarnar er bremsurnar með álagsstýringu sem er hluti af öryggisbúnaði bílsins.
Chevrolet Tosca er ryðvarinn með galvanhúðun stáls fyrir framleiðslu, á framleiðslustigi og við og eftir samsetningu. Því til viðbótar er allur undirvagninn húðaður með PVC-plastvörn. Sílsar og aðrir staðir sem verða fyrir steinkasti eru varðir með gegnsærri plastfilmu auk þess sem sérstök plasthúð er á brettaköntum að innanverðu til varnar tæringu. Framleiðandi ábyrgist ryðvörnina í 6 ár án tillits til ekinnar vegalengdar.
Helstu ytri mál og aðrar tölur
Til frekari glöggvunar er sambærilegt mál á nýjum Toyota Avensis haft innan sviga.
Tosca er 4805 mm á lengd (4630).
Breiddin er 1810 mm (1760).
Hæð er 1450 mm (1480)
Hjólhaf 2700 mm (2700).
Sporvídd Tosca er áberandi mikil, 1550 mm að framan (1505).
Botnskuggi Tosca er 8,7 m2 (8,15 m2).
Eigin þyngd er um 1460 kg.
Dráttargeta er 1300/500 kg.
Hjól/dekk eru af stærðunum 215 50 R17
Innanrými – farangur
Þróuð hönnun gerir það að verkum að innra rými Tosca er með því mesta sem þekkist í bíl af þessari stærð. Með því að beita nýrri tækni, gastjökkum í stað hefðbundinna lama á skottloki, eykst ekki einungis farangursrýmið um 45 lítra í 480 lítra heldur eykur þetta fyrirkomulag einnig rými farþega í aftursæti.
Axlarými í Tosca, samkvæmt staðlaðri mælingu, er 1443 mm í framsæti og 1443 mm í aftursæti. Hnjárými farþega í aftursæti mælist 960 mm. Þessi mál eru þau hagstæðustu í þessum flokki bíla. Þá skiptir máli að hæð setu aftursætis gerir það að verkum að fólk sest inn í Tosca í stað þess að setjast niður í hann (atriði sem atvinnubílstjórar gefa sérstakan gaum).
Aftursætið er með þrískiptu fellanlegu baki (1/3:2/3). Op á bak við armpúða má nota til að flytja lengri hluti svo sem skíði. Varahjól og verkfæri eru í hólfi í botni farangursrýmisins.
Innrétting - búnaður
Innréttingin í Tosca ber með sér vel útfærða hönnun; efni er áberandi vandað og allur frágangur stenst gagnrýna skoðun - jafnvel þeirra sem gera mestar kröfur. Yfirbragð mælaborðs og klæðningar er stílhreint og nýtískulegt í svörtum lit og línum sem eru skerptar með hóflegri notkun króms. Mælar eru skýrir og í beinni sjónlínu ökumanns. Stjórnbúnaður er allur sem næst stýrinu og hluti hans, fjarstýring útvarps og hraðastillir, í stýrishjólinu sjálfu. Ýmis smærri atriði í innréttingu auka þægindi svo sem vel út færðar og haganlega staðsettar hrislur, rúmgott hanskahólf, sérstakur hanki fyrir handveski, haldari fyrir sólgleraugu, vel útfærð inniljós, speglar á sólskyggnum, 12 volta úttak í miðjustokki fyrir fartölvu eða spilara o.fl. o.fl.
Stefna Chevrolet er að bjóða evrópskum kaupendum mikið fyrir peningana með Tosca. Það þýðir m.a. að ýmis þæginda- og lúxusbúnaður, sem greiða þarf fyrir sérstaklega þegar bílar keppinauta eiga í hlut, er innfalinn í verði Tosca sem staðalbúnaður. Þannig eru rafknúnar rúðuvindur með öryggisútslætti (t.d. ef fingur barns verður á milli) miðstöð með inntakssíu og loftkælikerfi (frystiþjappa) og rafstilltir speglar, en spegillinn vinstra megin beinist sjálfkrafa niður á við þegar sett er í bakkgír til að minnka líkur á því að ökumaður sjái ekki fyrirstöðu, t.d. barn.
Bílstjórastóll er með rafknúinni hæðarstillingu og stillanlegum stuðningi við mjóbak og læri, læsingar fjarstýrðar, þjófavörn, rafhitun er í sérstaklega einangraðri framrúðunni auk þess sem innfelld aukaljós eru í framstykki og tvö þokuljós í afturstuðara. Öflugum RDS-hljómflutningstækjum, með MP3-tengi, er fjarstýrt frá stýrinu.
Í Tosca er auk þess sem áður er talið, leðurklæðning, fullkomnari rafstilling bílstjórastóls (8 stillingar), hitaðir framstólar, tölvustýrt miðstöðvar- og loftkælikerfi (sjálfstæð kerfi fyrir bílstjóra, farþega í framsæti og farþega í aftursæti), hraðastillir, sóllúga og regnskynjari sem stjórnar rúðuþurrkum. 17 álfelgur eru staðalbúnaður
Nálgunnarvörn er staðalbúnaður í Tosca til að auka á öryggi og auðvelda
notkun á þröngum svæðum
Styrkur og öryggisbúnaður
Þrátt fyrir sterka byggingu og umfangsmikinn innbyggðan höggvarnarbúnað vegur Chevrolet Tosca innan við 1500 kg. Skýringin liggur í því að um 40% af burðarvirki bílsins er úr hágæða þolstáli sem er léttara, þynnra og mun sterkara en hefðbundið smíðastál. Tosca er byggður sem sjálfstætt burðarbúr (grindarlaus). Verði árekstur framanfrá beinir fremsti hluti burðarvirkisins högginu á 4 hluta sem breyta stefnu kraftanna og draga þannig úr áhrifum þeirra á ökumann og farþega í framsæti. Til frekara öryggis er láréttur stálbiti aftan við þverstæða vélina, á milli hennar og hvalbaksins, sem varnar því að hlutar í vélarrými geti gengið inn í farþegarýmið. Styrktir rúðupóstar, dyrastafir og styrktarbitar innan í hurðum veita vörn gegn hliðarhöggum.
Meðvirkur öryggisbúnaður innifelur 3ja punkta belti með sjálfvirkri skotstrekkingu og eftirslökun fyrir öll 5 sæti, öryggispúða fyrir framan, ofan og í hliðum (6 stk.). Þá er sérstök höggvörn innbyggð í mælaborðið í hnjáhæð. ISOFIX-festingar eru fyrir barnastóla, barnalæsingar og búnaður sem aftengir öryggispúða í hægra framsæti sé barnastól fest þar og endurtengir öryggisbúnaðinn sjálfvirkt þegar barnastóllinn er fjarlægður.
Annar öryggisbúnaður er m.a. 4ra rása ABS-bremsur með álagsstýrðu átaki, sjálfvirk læsing hurða við 50 km/klst. og sjálfvirk aflæsing við árekstur.
Hljóðeinangrun - litir
Bundið slitlag vega hérlendis er úr grófara efni en víða annars staðar, t.d. í Skandinavíu og á meginlandi Evrópu. Veghljóð getur því verið talsvert meira í bílum hérlendis en víða erlendis. Sérstök hljóðeinangrun í Chevrolet Tosca mun því koma að góðu gagni hérlendis.
Titringslaus gangur 6 sílindra línuvélarinnar og ýmis hljódeyfandi búnaður við hana gerir vélina mjög hljóðláta. Frekari hljóðdeyfing er fólgin í sérlega þykku öryggisgleri í hliðarrúðum (0,3 mm þykkari en gengur og gerist), hljóðdeyfandi frauðlagi innan í mælaborði, þykku gólfteppi, teppalögðu farangursrými og hjólskálum sem fóðraðar eru að innanverðu með pólýprópýlen-svampi.
|
|
|
 |
|
|
|