billinn.is - íslenski bílavefurinn
  Freelander SE 2004   Chevrolet Cruze 2009   BMW M5 2005
fréttir
umsagnir
greinar
spurt/svarađ
tenglar
lánareiknivél
Orđabókin
Hestafl (horsepower)
Mćlieining afls.
:: greinar
Tuesday, 05. september 2006 - 17:01
MYT-sprengihreyfillinn gćti valdiđ byltingu
- -sögđ öflugasta og sparneytnasta vél í heimi og skilar tvöföldu afli á viđ 17 sinnum ţyngri vélar
Algjör bylting kann ađ vera í sjónmáli í hönnun bíla, skipa og flugvéla ef ţađ tekst ađ koma nýrri bandarískri vélahönnun í notkun á nćstu árum. Komin er fram á sjónarsviđiđ svokölluđ MYT dísilvél sem, ef rétt er, skilar tvöföldu afli á viđ 17 sinnum ţyngri hefđbundnar vélar. Ţann kann ađ hljóma ótrúlega en frumgerđin, sem vegur ađeins 68 kílógrömm, skilar heilum 850 hestöflum. Fullyrđir hönnuđurinn ađ venjulegur millistćrđar fjölskyldubíll međ 200 til 500 hestafla MYT vél sem vćri á stćrđ viđ kaffibrúsa, eyddi ekki nema í mesta lagi um 1,4 lítrum á hverja hundrađ kílómetra.

Öflugasta vél í heimi

Hugmyndasmiđurinn er Raphial RG. Morgado hjá Angel Labs í Kaliforníu. Hann kom fram međ aldeilis byltingarkennda vél sem hann nefndi MYT eđa "Massive Yet Tiny Engine". Hann fékk 1. verđlaun fyrir frumgerđ vélarinnar í keppninni "Create the Future" sem styrkt er af NASA. Morgado fékk skráđ einkaleyfi á hugmynd sinni í Bandaríkjunum í maí áriđ 2004.

68 kg en skilar 850 hestöflum

Vélin er sannarlega lítil ţó aflmikil sé. Hún er ađeins 14 tommur í ţvermál (35,56 sentímetrar) og 14 tommur ađ lengd og vegur ekki nema 150 pund, eđa 68 kílógrömm ađ međtöldu svinghjóli. Hún gengur fyrir dísilolíu, en hönnuđurinn mćlir ţó međ notkun á bíódísil sem er blanda af dísilolíu og jurtaolíu. Ástćđan er betri smureiginleikar bíódísilolíunnar sem gerir notkun á sérstakri smurolíu óţarfa.

Ótrúlegt ţjöppunarhlutfall

Ţjöppunarhlutfalliđ í MYT vélinni er sagt vera ótrúlega mikiđ, eđa 25:1. Ţá telja hönnuđir ađ ađ vegna sérstćđrar hönnunar vélarinnar sé hćgt ađ ná ţjöppunarhlutfallinu upp í allt ađ 70:1 sem er hreint ćvintýralegt ef haft er í huga ađ í venjulegum bílvélum er veriđ ađ tala um 10:1 í bensínvélum til í kringum 15:1 í dísilvélum.

Sprengihreyfillinn eins og notađur er í flestum bílum í dag er ađ upplagi yfir hundrađ ára gömul hönnun. Ţrátt fyrir gríđarlegar tćkniframfarir á öllum sviđum hafa bílvélar tekiđ tiltölulega litlum breytingum allan ţennan tíma. Einstaka undantekningar má finna eins og Wankel vél Mazda. Engin vél hefur ţó enn slegiđ út gamla sprengihreyfilinn sem er ýmist knúinn međ bensíni, gasi eđa dísilolíu.

Ţar međ er ekki sagt ađ ekki hafi komiđ fram hugmyndir ađ nýjum vélum og sumar byltingarkenndar. Samsćriskenningar eru um ađ flestar ţessar hugmyndir hafi veriđ keyptar upp af stórfyrirtćkjum sem áttu hagsmuna ađ gćta í eldri hönnun. Ţví hafi ţau keypt nýjar hugmyndir einungis til ađ jarđa ţćr og tryggja ađ ţćr kćmust ekki í samkeppnina. Ekki er ţó enn búiđ ađ stinga undir stól hugmyndinni ađ MYT vélinni sem var fyrst kynnt í Bandaríkjunum áriđ 2005. Ţađ tók 5 ár ađ ţróa ţessa hugmynd og kostnađurinn viđ ţá vinnu nam um 4 milljónum dollara, ađ sögn hönnuđarins.

Einföld og hagkvćm

Snilldin viđ ţessa vél er hversu einföld hún er ađ allri gerđ og smíđuđ úr fáum hreyfanlegum hlutum sem gerir allt viđhald mun auđveldara. Fćrri hlutir ţýđa líka léttari vél, en í heild eru ađeins 31 hlutur í MYT-vélinni og ţar af ađeins 26 hreyfanlegir hlutir. Orkutap vegna viđnáms í vélinni sjálfri er nćrri ţví ekkert.

Hugsunin ađ uppbyggingu vélarinnar svipar nokkuđ til Wankel Rotary vélar Mazda, en er samt mjög ólík. MYT vélina má nota í hvađa faratćki sem er, hvort heldur ţađ eru smábílar, stórir trukkar, skip eđa flugvélar. Og vegna smćđar sinnar, sparneytni og léttleika gćti hún hćglega leitt til mikilla breytinga í hönnun vélknúinna farartćkja.

Afl á viđ margfalt mun stćrri vélar

Ţrátt fyrir smćđina er MYT-vélin samt jafnvíg ađ afli og fjórar 8 cylindra fjórgengisvélar međ samanlagt 2.154 rúmsentímetra (848 rúmtommu) sprengirými samanlagt. Eđa jafnvíg margfalt stćrri og ţyngri 32 cylindra dísilvél.

MYT vélin sprengir 32 sinnum í hverri hringferđ stimplanna um sveifarásinn, en ólíkt hefđbundnum sprengihreiflum ţá er ekkert bakslag á stimplunum viđ ađ draga inn eldsneytisblöndu, ţjappa og dćla út afgasi, heldur ferđast ţeir stöđugt í hring um strokkinn (cylinderinn) sem er í raun bara einn sívalningur. Innsog og útblástur er á tveim stöđum á hringnum. Orkutap vegna bakslags er ţví ekkert í ţessari fjórgengisvél sem gerir líka gćfumuninn. Ţá snerta stimlarnir sjálfir aldrei strokkvegginn, heldur ađeins stimpilhringirnir sem gerir viđnámiđ eins lítiđ og kostur er.

Hefđbundin 400 hestafala 8 cylindra dísilvél eins og ţekkist í stórum vörubílum vegur t.d. um 1.100 kg. MYT vélin vegur eins og áđur sagđi ađeins 68 kg og skilar samt 850 hestöflum, eđa ríflega tvöföldu afli stóru dísilvélarinnar sem er samt 17 sinnum ţyngri. Er MYT vélin talin öflugasta vél miđađ viđ ţyngd sem ţekkist í heiminum í dag, jafnvel öflugri en öflugustu ţotuhreyflar miđađ viđ ţyngd. Ţá er hún margfald hagkvćmari í rekstri.

1,4 lítrar á hundrađiđ

Ţađ er svo sem engin ţörf á 850 hestöflum í venjulega fólksbíla, ţó auđvelt vćri ađ koma einni og jafnvel fleiri MYT-vélum í einn slíkan bíl. Á kynningu sem haldin var í Kaliforníu sagđi Raphial Morgado ađ til ađ knýja fólksbíl vćri nóg ađ vera međ vél sem vćri á stćrđ viđ kaffibrúsa, eđa mjólkurfernu. Bílvélin ćtti samt ađ skila 200 til 500 hestöflum. Sagđist Morgado geta lofađ ţví ađ venjulegur fólksbíll međ slíkri vél kćmist 150 mílur á einu galloni af dísilolíu (eđa jurtaolíu). Ţađ samsvarar um 1,4 lítra eyđslu á hverja hundrađ kílómetra. Ţá segist hann ekki hafa metiđ ađ fullu áhrifin af ţví ađ losna viđ gömlu ţungu vélina.

MYT vélin hefur ţó enn ekki hlotiđ blessun neinna bílaframleiđenda svo vitađ sé. Ţví á hún vćntanlega á hćttu eins og margar fleiri stórsnjallar vélahugmyndir ađ vera keypt upp og grafin um langa framtíđ. Íslenskur véliđnfrćđingur sem Viđskiptablađiđ rćddi viđ tók undir ţetta. Hann hafđi heyrt af MYT vélinni, en hafđi ekki séđ neinar upplýsingar um hana og treysti sé ţví ekki til ađ gefa sitt álit á hugmyndinni.

Ţađ gćti ţó bjargađ ţessari snjöllu hugmynd ađ hönnuđurinn hefur veriđ óţreytandi viđ ađ kynna vélina á ráđstefnum og víđar og fengiđ verđlaun ađ auki. Ţá hefur vélin töluvert veriđ í umrćđunni á spjallrásum á Internetinu og meira ađ segja sagt frá svipađri hugmynd sem kom fram sem skólaverkefni 1986, en var skotin var í kaf af prófdómara vegna vanţekkingar prófdómarans sjálfs. Ţađ gćti ţví reynst erfitt ađ ţegja hugmyndina í hel, en sterkir hagsmunir vélaframleiđenda (og trúlega eldsneytisframleiđenda) gćtu vissulega reynst henni hćttulegir.

Byggt á grein í Viđskiptablađinu 1. september 2006
MSN Messenger Display Pictures
Nýjar greinar
Saga Ford Mustang
100 ára afmćli Ferry Porsche
Tugmilljóna króna endurfćđing forsetabíls
Mikilvćgi C-bílsins
Er metan máliđ?
Hćgt ađ minnka gróđurhúsalofttegundir
Eru bílarnir sökudólgar?
Hálendisakstur og óbrúađar ár
Sjálfvirkar bílageymslur
Vélar framtíđarinnar
Chevrolet Tosca 2007
MYT-sprengihreyfillinn gćti valdiđ byltingu
Suzuki Swift Bíll ársins
Vistvćn framtíđ í bílaheiminum
Lítiđ M en mikill kraftur
Audi Q7
Brimborg slćr ný met í sölu, veltu og hagnađi
Kosta Ford stórfé
Tćknihliđ Musso
10 milljarđa dollara mađurinn