|
|
|
|
|
|
 |
|
|
|
|
|
Þegar framendi bílsins leitar út úr beygju. |
|
|
|
|
 |
|
|
|
|
|
 |
|
| :: greinar |
|
| Friday, 28. október 2005 - 16:47 |
|
Suzuki Swift varð fyrir valinu sem Bíll ársins 2006 í árlegu kjöri Bandalags íslenskra bílablaðamanna (BÍBB). Tilkynnt var um viðurkenninguna við athöfn í Perlunni sunnudaginn 23. október síðastliðin. Valið stóð á milli níu bíla í þremur flokkum en auk þess var valinn sportbíll ársins úr fjórða flokknum. Sportbílarnir koma ekki til greina við val á bíl ársins. Suzuki Swift varð hlutskarpastur jafnframt í flokki smábíla og millistærðarbíla. Í flokki stærri fjölskyldu- og lúxusbíla stóð Volkswagen Passat uppi sem sigurvegari og í flokki jeppa og jepplinga sigraði Lexus RX400h. Í sportbílaflokki var BMW M5 sem hlaut nafnbótina sportbíll ársins. Það voru Skeljungur og Tryggingamiðstöðin sem voru samstarfsaðilar BÍBB við valið og þakkaði Ómar Ragnarsson þeim sérstaklega fyrir aðstoðina við að koma þessu vali á laggirnar í ræðu sinni þegar greint var frá valinu. Þetta er í annað sinn sem BÍBB stendur fyrir vali á Bíl ársins og hafa Skeljungur og Tryggingamiðstöðin stutt framtakið frá upphafi.
Íslenskir bílablaðamenn höfðu úr tæplega 50 bílum að velja en 12 komust í lokaúrslit og voru bílarnir reyndir við fjölbreytilegustu aðstæður eins og sjá má í myndasyrpu á www.billarsins.is
Smábílar og millistærð
1. Suzuki Swift 145 stig
2. Citroen C4 104 stig
3. Peugeot 1007. 87 stig
Með þessum nýja Suzuki Swift tekur framleiðandinn risastökk fram á við miðað við gamla Swiftinn, segir í umsögn dómnefndar. "Þetta er ósambærilega miklu betri bíll, sem hefur allt að bjóða, sem hægt er að ætlast til af bíl í þessum stærðarflokki, góðan búnað, vélaúrval og þokkalegt verð. Rými ágætt í framsætum og í meðallagi í aftursætum, farangursrými að vísu lítið en dugar í styttri ferðum. Aksturseiginleikar með þeim betri í þessum flokki og ekki skaðar útlitið. Útlitshönnunin er einstaklega vel heppnuð, svipurinn grípur mann strax og fólk lærir að þekkja hann á augabragði, það sést svo vel að þetta er Suzuki Swift og ekkert annað," segir umsögn dómnefndar,. Þessi bíll var eini bíllinn í þessu vali, sem hlaut fyrsta sætið í sínum flokki hjá öllum átta bílablaðamönnunum, sem gáfu stig.
Fjölskyldu- og lúxusbílar
1. Volkswagen Passat 127 stig
2. BMW 3 119 stig
3. Hyundai Sonata 100 stig
Dómnefndin sagði í niðurstöðu sinni að með hinum nýju gerðum af Golf og Passat hafa Volkswagenverksmiðjurnar sýnt fram á að lengi má gera gott betra. "Í báðum þessum nýjustu útgáfum hefur tekist að bæta aksturseiginleika en bjóða jafnframt upp á mýkt og öryggi. Í Passatinum er mikið rými fyrir fólk og farangur. Hann er svo góður að hann er ógnun við lúxusbílinn Volkswagen Phaeton, sérlega velheppnuð blanda af þægindum og öruggum og ljúfum aksturseiginleikum. Ef ætti að nefna einhvern ókost felst það í því að með því að bjóða upp á svona mikið rými er bíllinn orðinn ansi stór að utanmáli og er því orðinn nokkuð plássfrekur í umferðinni," segir umsögn dómnefndar.
Jeppar og jepplingar:
1. Lexus RX 400 130 stig
2. Suzuki Grand Vitara 114 stig
3. Landrover Discovery 3 100 stig
Dómnefndin var sammála um að Lexus RX 400 værir ólíkindabíll, og það byggist mest á tvinnbílstækninni þar sem tveir rafmótorar sjá um að útvega tog og ótrúlega sparneytni miðað við að þetta er um tveggja tonna bíll með alls 272 hestöfl. "Það eru ekki margir bílar sem bjóða upp á 750 newtonmetra tog og enginn annar er með eyðslutölur séu innan við tíu lítra á hundraðið. Sameinar kosti lúxusbíls með afbragðs rými og þægindum án þess að fórna of miklu af jeppaeiginleikum. Frábær frágangur og fágun," sagði dómnefndin.
Sportbílar
1. BMW M5 129 stig
2. Ford Mustang 113 stig
3. Porsche Boxter 96 stig
BMW M5 er bíll sem sameinar ofursportbíl, lúxusbíl og fjölskyldubíl í einn bíl. "Með ólíkindum að svona stór og þungur bíll með jafnmiklu innanrými skuli búinn svo frábærum aksturseiginleikum. Margir hafa samt horn í síðu þess hvað tölvutæknmenn BMW hafa fengið að fara á mikið flug í að búa bílinn svo flóknu kerfi að það þurfi næstum því að fara á námskeið til að geta notað hann," sagði dómnefndin. |
|
|
 |
|
|
|