|
|
|
|
|
|
 |
|
|
|
|
|
Þegar framendi bílsins leitar út úr beygju. |
|
|
|
|
 |
|
|
|
|
|
 |
|
| :: greinar |
|
| Thursday, 13. október 2005 - 17:59 |
|
Flestir bílaframleiðendur verja árlega umtalsverðum fjármunum í að þróa nýjar gerðir bíla sem eyða minna eldsneyti og menga minna. Undanfarin ár hefur orðið bylting í gerð díselvéla sem eyða nú aðeins broti af því sem áður var um leið og nýjar síur koma í veg fyrir hina hvimleiðu sótmengun sem fylgdi þeim. Þannig má segja að díselbílar hafi orðið raunverulegur valkostur þeirra sem vilja vistvæna bíla. Flestum er þó ljóst að meira þarf að gera.
Hugtakið vistvænn bíll snýst í hugum flestra fyrst og fremst um
tvinnbíla – bíla sem eru með bensín-og rafmótor enda má segja að útfærsla á slíkum búnaði sé kominn einna lengst í þróun þessara nýju valkosta. Margir framleiðendur hafa einnig reynt að þróa bíla sem ganga fyrir nýjum tegundum eldsneytis, s.s. vetni, metan, gasi og alkóhóli. Segja má að þriðja leiðin hafi falist í því að endurbæta þá bíla sem fyrir eru og eru díselbílar komnir þar lengst enda sumir þeirra orðnir mjög neyslugrannir.
Mikil tilraunamennska hefur einkennt margt af því sem bílaframleiðendur eru að gera og hafa sumir jafnvel reynt nýjar leiðir til að varðveita orkuna eins og sést af tilraunum manna við að varðveita vetni í töfluformi. Einnig hafa menn reynt margt til að finna nýjar og ódýrari leiðir til að framkalla vetnið sem er ein aðferð við að geyma orku.
Tvinnbílatæknin
Flestallir stærstu bílaframleiðendur heims leggja mikið á sig við að þróa tvinnbíla og má sem dæmi nefna að P. Samúelsson, umboðsaðili Toyota á Íslandi, selur nú þegar tvo slíka, Prius og RX 400h frá Lexus. Honda hefur einnig náð góðum tökum á framleiðslu tvinnbíla og selur árlega mikið af þeim erlendis, einkum í Kaliforníu, þar sem mjög strangar mengunarreglur ríkja. Nýlega greindu Porsche og Volkswagen frá því að fyrirtækin hyggðust fara í samstarf um framleiðslu á tvinnvélum og væru þá sérstaklega að horfa til stærri bíla sinna því enn þarf töluvert pláss til að koma tvinnvélabúnaðinum fyrir.
Sömuleiðis má geta þess að Subaru sýnir nú frumgerð tvinnbíls á bílasýningunni í Tokyo sem nú stendur yfir. Sá kallast B5-TPH og er með bæði dæmigerðri tveggja lítra Subaru-Boxervél sem er ljósamótorinn. Í bílnum er einnig rafmótor/rafall svipað og í Toyota Prius. Aflkerfið í bílnum er tveggja lítra vél sem fyrr segir en með tveimur túrbínum. 14 hestafla rafmótorinn er festur við vélina en síðan kemur gírkassinn. Rafmótorinn/rafallinn sér um að halda straum á rafkerfinu og hlaða líþíumrafgeyminn, ræsa bensínhreyfilinn og gefa viðbótarorku þegar ökumanni liggur ógurlega mikið á. Hestöflin eru samtals 260 og hámarksvinnslan er 350 Newtonmetrar. Þetta nýja aflkerfi verður trúlega í boði í Subaru Legacy og Forester árið 2007.
Á bílasýningunni í Tokyo er Mercedes Benz einnig að sýna
nýjan hugmynda- og tilraunabíl með efnarafal. Bíllinn er mun aflmeiri
og nýtir vetnisorkuna mun betur en slíkir bílar hafa áður getað.
Mercedes á eignarhlut í kanadíska fyrirtækinu Ballard sem þróar og
framleiðir efnarafala og er tæknibúnaður nýja bílsins einmitt frá
Ballard að stórum hluta.
Mercedes Benz hefur gefið bílnum nafnið F 600 Hygenius. Hann er byggður á B-Benzanum sem kynntur var til sögunnar fyrr á árinu. Í honum er tvöfaldur botn og þar er efnarafallinn og mjög öflugar og hraðvirkar líþíum-jónarafhlöður. Orkunýtnin er sögð vera slík að hún jafngildi 2,9 lítrum af dísilolíu á hverja 100 kílómetra. Þegar Hygenius er ekið af stað gerist það næstum alltaf á rafhlöðunum einum. Það er ekki fyrr en „gefið er í botn“ að efnarafallinn kemur inn til viðbótar. Rafhlöðurnar geta gefið frá sér stöðugt afl sem jafngildir 82 hestöflum og vinnslu upp á 250 Newtonmetra og við „botninngjöf“ hefur efnarafallinn viðbótarafl upp á 33 hestöfl og hámarksvinnslan er þá 350 Newtonmetrar.
En þrátt fyrir að þetta hljómi allt vel þá segir í frétt frá Mercedes
Benz að vetnis-efnarafalstæknin nái ekki að standa jafnfætis
hefðbundnum bílvélum fyrr en 2012. Enn eigi eftir að þróa þennan
tæknibúnað, gera hann fyrirferðarminni og öruggari í rekstri, ekki síst
að vetrarlagi – og um leið ódýrari.
Þriðji aðilinn sem hefur boðaði nýjungar á bílasýningunni í Tokyo er Mazda. Félagið hefur greint frá því að sýndur verði tvinnbíll með Wankel vél sem brennir vetni. Það er umtalsverð nýjung.
Mazda er eini bílaframleiðandinn í veröldinni sem byggir Wankel mótora sem byggja á uppfinning Þjóðverjans Felix Wankel. Mazda á nú öll einkaleyfi tengd þessari vél og hana er t.d. að finna í sportbílnum Mazda RX8 sem til er í nokkrum eintökum hér á landi og var valinn sportbíll ársins 2004 af BÍBB. Wankel-mótorar eru miklu einfaldari, minni um sig og léttari en hefðbundnir stimplamótorar og mun færri hreyfanlegir hlutir eru í þeim og þar með minna innra viðnám. Þeir hafa hins vegar eytt meira en venjulegar vélar.
Í Tokyo verður sýnd Mazda 5 bíl með vetnisknúinni Wankelvél. Áfastur við vélina er rafmótor/rafall sem ræsir Wankelvélina og gefur aukaafl við hröðun. Auto Motor & Sport segir að Mazda hafi lengi gert tilraunir með vetni sem eldsneyti fyrir Wankelvélar og hafi þegar þróað slíka vél sem hægt er að keyra á bæði vetni og bensíni.
Hugmyndaauðgið mikið
Segja má að hugmyndaauðgi manna séu fá takmörk sett þegar kemur að því að finna nýja orkugjafa. Má t.d. nefna að ósköp venjulega dísilbíla stóra sem smáa má keyra á venjulegri matarolíu. Sömuleiðis er það sáraeinfalt að hreinsa notaða steikingarolíu frá skyndibitastað sem hvort eð er á að henda, þannig að hún verði hið ágætasta eldsneyti á dísilknúna heimilisbílinn. Til þess þarf einungis að byrja á því að sía olíuna en fella síðan út glycerínið í henni með því að hræra út í hana tréspíra og vítissóda. Reyndar er þannig vinnsla á slíkri olíu þegar hafin í talsverðum mæli í Evrópu og lítilsháttar í Bandaríkjunum. Olíufélagið Shell framleiðir t.d. lífræna dísilolíu sem nefnist Sun Diesel en ekki er vitað hve mikið selst af henni.
Meira að segja sportbílaframleiðendur hugsa sér að nýta hina nýju tækni þó flestir viti að þar er sjaldnast verið að hugsa um eyðsluna.
Breski sportbílasmiðurinn Morgan hefur greint frá því að hann ætli að koma á markað með fyrsta umhverfisvæna sportbíl sögunnar eftir þrjú ár ef marka má fréttir breskra fjölmiðla. Morgan LIFECar á bíllinn að heita og er hann byggður á Morgan Aero 8, sem er ein nýjasta gerð Morgan sportbíla.
Þessi nýi umhverfisvæni bíll er nú í hönnun og auk Morgan fyrirtækisins
taka þátt í verkefninu margir breskir fjárfestar og athafnamenn sem
lagt hafa tæpar tvær milljónir punda í verkefnið. Bíllinn á að verða
tilbúinn til framleiðslu eftir tvö og hálft ár.
Nýi sportbíllinn verður knúður vetni sem efnarafall breytir í rafmagn
sem svo knýr fjóra rafmótora, einn við hvert hjól. Bíllnn er sagður
verða mjög hljóðlátur og loftmengun frá honum verður engin
útblástursmengun, aðeins vatnsgufa.
Byggt á heimasíðu FÍB, Financial Times, Car and Driver og Viðskiptablaðinu.
|
|
|
 |
|
|
|