billinn.is - íslenski bílavefurinn Frumherji
  Hyundai Tucson 2005   Ford Expedition 2008   BMW X3 2004
fréttir
umsagnir
greinar
spurt/svarað
tenglar
lánareiknivél
Orðabókin
DOHC
Algeng skammstöfun sem stendur fyrir 'Double OverHead Camshaft' sem merkir tvöfaldur, yfirliggjandi knastás.
:: greinar
Tuesday, 27. september 2005 - 17:28
Lítið M en mikill kraftur
Það er ekki víst að allir átti sig á því hvað fellst í M viðskeytinu hjá BMW enda slíkir bílar ekki á allra færi. Sérpanta þarf bílanna og töluvert þarf að hafa fyrir því að læra inná þá. Flestir sportbílar og margir kraftmiklir fólksbílar þekkjast af áberandi útliti en BMW hafur farið í þveröfuga átt og má segja að hið óguðlega afl M5 fólksbílanna sé falið í umgjörð ósköp venjulegs fólksbíls. Afturendi og neðra borð bílsins eru sérstaklega hönnuð með tilliti til loftflæðis þannig að M5 bíllinn sogast beinlínis að götunni.

Í upphafi var hugmyndin sú hjá BMW að smíða "öðruvísi" sportbíl, með tiltölulega hefðbundið útlit en óvenjulega vél og óvenjulegan búnað. Í lok sjöunda áratugsins var hinn frægi BMW M1 hannaður; sportbíll með 277 hestafla vél, fjögra ventla tækni og 6 strokka línuvél.

Á áttunda áratugnum yfirfærði BMW þessa hönnun á fjöldaframleidda bíla og þannig varð M5 gerðin til. Sá bíll hefur þróast með árunum og nýlega birtist ný kynslóð af M5, með hvorki meira né minna en 507 hestöflum sem V10 strokka vélin skilar. Hér er um að ræða nýja og endurhannaða vél sem býður upp á kraft og getu í nýrri og áður óþekktri vídd.

Fyrsta kynslóð M5, sem kom 1985, var búin sex strokka línuvél, 286 hestöflum. Næsta kynslóð birtist 1989 og þá var aflið komið upp í 316 hestöfl og árið 1992 var 3,6 lítra vélinni skipt út fyrir 3,8 lítra vél og aflið aukið um leið uppí í 340 hestöfl. Í þriðju kynslóð, sem birtist 1998 og rann sitt skeið á enda í fyrra, var kynnt til sögunnar 4,9 lítra, V8 vél, 394 hestafla. Þessi bíll var boðinn með sex gíra beinskiptum kassa.

Nú á miðju ári 2005 var fimmta kynslóðin kynnt til sögunnar. Í fyrsta sinn er boðið upp á V10 bensínvél í fjöldaframleiddum fólksbíl og það ekkert venjuleg V10-vél. Sem fyrr segir skilar hún að hámarki 507 hestöflum og togar 520 Nm að hámarki. BMW segir að innblásturinn að V10 vélinni hafi komið frá Formúla 1 og munu tæknimenn BMW hafa haft aðgang að keppnisliði Williams en sem kunnugt er þá skaffa BMW þeim vél. Það er ófrávíkjanleg stefna BMW að allir öryggisþættir vinni saman að því að tryggja hámarksöryggi þitt og annarra vegfarenda. Auk öryggisbúnaðar á borð við DSC III spólvörn, affelgunarhindrun og dekkjaviðvörun (viðvörun ef sprungið) er M línan einnig með 8 loftpúða fyrir bílstjóra og alla farþega.

Mörgum þótti einsýnt að BMW yrði að M5 og M6 enn betur en áður því næsta kynslóð M3 er væntanleg með V8 vél.
MSN Messenger Display Pictures
Nýjar greinar
Saga Ford Mustang
100 ára afmæli Ferry Porsche
Tugmilljóna króna endurfæðing forsetabíls
Mikilvægi C-bílsins
Er metan málið?
Hægt að minnka gróðurhúsalofttegundir
Eru bílarnir sökudólgar?
Hálendisakstur og óbrúaðar ár
Sjálfvirkar bílageymslur
Vélar framtíðarinnar
Chevrolet Tosca 2007
MYT-sprengihreyfillinn gæti valdið byltingu
Suzuki Swift Bíll ársins
Vistvæn framtíð í bílaheiminum
Lítið M en mikill kraftur
Audi Q7
Brimborg slær ný met í sölu, veltu og hagnaði
Kosta Ford stórfé
Tæknihlið Musso
10 milljarða dollara maðurinn