billinn.is - íslenski bílavefurinn
  Chervolet Lacetti 2005   VW Passat 2.0 TDI 2005   VW Touran 2004
fréttir
umsagnir
greinar
spurt/svarað
tenglar
lánareiknivél
Orðabókin
Undirstýring
Þegar framendi bílsins leitar út úr beygju.
:: greinar
Monday, 30. maí 2005 - 22:19
Kosta Ford stórfé
Visteon Corp., sem er næst stærsti íhlutaframleiðandi í bandarískum bílaiðnaði og einn stærsti vinnuveitandi í Michigan, hefur átt í verulegum vandræðum undanfarin misseri vegna gríðarlegs taps. Forsvarsmenn verkalýðssambands United Auto Workers (UAW) hafa fallist á að leggja að sínu fólki að samþykkja meiriháttar uppstokkun og uppskipti á félaginu, en þrotlausar samningaviðræður hafa verið í gangi mánuðum saman á milli Visteon og Ford Motor Co sem var áður móðurfélag Visteon.

Dýr biti fyrir Ford

Ford og Visteon hafa þegar lagt til hliðar 25 milljónir dollara vegna eftirlaunagreiðslna í samræmi við 90 ára starfslokareglu félaganna. Þá hefur Ford samþykkt að létta á greiðslubirgði vegna starfsmanna Visteon sem nemur 25 milljónum dollara á mánuði út þetta ár. Einnig að Ford leggi til 150 milljónir dollara vegna tækjakaupa. Auk þessa tók Ford á sig á síðasta ári eftirlaunaskuldbindingar Visteon upp á 1,65 milljarða dollara.

213 milljarða króna tap

Áhyggjur af hugsanlegu gjaldþroti Visteon hafa hlaðist upp á undanförnum mánuðum og á fyrsta ársfjórðungi þessa árs tapaði félagið 188 milljónum dollara. Uppstokkun á félaginu er talið enn eitt áfallið fyrir hinn lasburða bílaiðnað í Detroit. Hefur þessi grein átt undir högg að sækja í harðri samkeppni við erlenda framleiðendur sökum mikils launakostnaðar og samdráttar á markaði í Bandaríkjunum.

Í verksmiðjum Visteon víða um heim vinna um 70.000 starfsmenn og 19.000 í verksmiðjum í Michigan. Félagið hefur átt í erfiðleikum síðan árið 2000 þegar það var aðskilið frá Ford sem er þó enn stærsti viðskiptavinurinn. Í dag fara um 70% af framleiðslu Visteon í bíla sem Ford framleiðir. Auk vaxandi framleiðslukostnaðar, þá hefur það ekki dregið úr vanda Visteon að Ford hefur verið að draga úr bílaframleiðslu sinni. Síðan 2001 hefur Visteon tapað 3,3 milljörðum dollara, eða sem svarar 213 milljörðum íslenskra króna. Hefur fyrirtækið reyndar aldrei skilað hagnaði síðan það var aðskilið frá Ford að því er segir í frétt The Detroit News.

Verksmiðjur undir nýtt félag

Þær aðgerðir sem nú eru ráðgerðar fela í sér að Visteon losar sig við 15 verksmiðjur í Bandaríkjunum og um leið þúsundir hálaunaðra starfsmanna. Samkvæmt samkomulagi mun UAW muni leggja hart að sínum mönnum innan Visteon að samþykkja þessar aðgerðir.

Fjórtán verksmiðjur Visteon verða settar undir nýtt eignarhaldsfélag með takmarkaðri ábyrgð (limited liability company) sem stýrt verður af Ford. Þetta eru verksmiðjur Visteon í Milan, Monroe, Saline, Plymouth, Chesterfield Township, Utica og Ypsilanti. Reyndar er gert ráð fyrir að verksmiðjunni í Chesterfield verði lokað um mitt næsta ár. Þá er einnig gert ráð fyrir að Ford reyni að selja verksmiðjurnar áfram til annarra íhlutaframleiðenda. Sömuleiðis er ráðagert að verksmiðjur Visteon; Tulsa og Okla í Indianapolis, verksmiðjurnar í Nashville og Lebanon í Tennessee, verksmiðja í Kansas City í Montana og verksmiðja í Sandusky í Ohio fari einnig inn í eignarhaldsfélagið. Í öllum þessum verksmiðjum starf um 19 þúsund manns.

Þúsundir starfslokasamninga<

Þá er Ford einnig að undirbúa gerð starfslokasamninga við 5 þúsund Visteon og Ford starfsmenn sem tilheyra samtökum United Auto Workers. Ron Gettlefinger, formaður UAW, segir verkalýðsfélögin eiga fáa aðra kosti í stöðunni en að samþykkja þessa uppstokkun á Visteon til að reyna að bjarga sem flestum störfum. Atkvæðagreiðsla fer fram meðal félagsmanna UAW um samkomulagið á tímabilinu 31. maí til 5. júní. Ef þetta verður samþykkt kemur áætlunin til framkvæmda síðar á þessu ári.

Þá er í samkomulagi UAW, Visteon og Ford reiknað með að starfsmenn verksmiðja sem seldar verða haldi óskertum launum sínum fram í September 2007 óháð því hver kaupandinn er. Eftir þann tíma verði launamál þeirra í valdi nýrra eigenda.

Samningar þessir munu vera af svipuðum toga og gerðir voru 2003 við félag sem heyrði undir DaimlerChrysler AG.

Eins og fram kom í Viðskiptablaðinu í síðustu viku hefur bandaríska stórfyrirtækið Collins & Aikman Corp., sem einnig er einn stærsti framleiðandi íhluta í bíla í Bandaríkjunum, óskað eftir gjaldþrotameðferð undir ákvæðum "Chapter 11". Collins & Aikman er með um 23 þúsund starfsmenn í 17 löndum. Fleiri íhlutaframleiðendur í Michigan eins og Tower Automotive Inc. og Federal-Mogul Corp. hafa verið í sama ferli á undanförnu mánuðum og árum.


Byggt á frétt í Viðskiptablaðinu 27. maí 2005.
MSN Messenger Display Pictures
Nýjar greinar
Saga Ford Mustang
100 ára afmæli Ferry Porsche
Tugmilljóna króna endurfæðing forsetabíls
Mikilvægi C-bílsins
Er metan málið?
Hægt að minnka gróðurhúsalofttegundir
Eru bílarnir sökudólgar?
Hálendisakstur og óbrúaðar ár
Sjálfvirkar bílageymslur
Vélar framtíðarinnar
Chevrolet Tosca 2007
MYT-sprengihreyfillinn gæti valdið byltingu
Suzuki Swift Bíll ársins
Vistvæn framtíð í bílaheiminum
Lítið M en mikill kraftur
Audi Q7
Brimborg slær ný met í sölu, veltu og hagnaði
Kosta Ford stórfé
Tæknihlið Musso
10 milljarða dollara maðurinn