|
|
|
|
|
|
 |
|
|
|
|
|
Þegar afturendi leitar út úr beygju. |
|
|
|
|
 |
|
|
|
|
|
 |
|
| :: greinar |
|
| Friday, 22. apríl 2005 - 09:46 |
|
Musso frá SsangYong í Suður-Kóreu hefur verið áberandi í umferðinni hérlendis (um 1250 bílar) og margir þeirra mikið breyttir, t.d. fjallabílar á 38” dekkjum. Musso er að mörgu leyti sérstakur á meðal jeppa. Fyrst skal nefna að vélarnar í Musso eru frá Mercedes-Benz. Sem dæmi um hönnun þessara véla má nefna að smurolíukerfið í 5 sílindra 2,9 lítra dísilvélinni rúmar um 10 lítra af smurolíu sem er mun meira en í álíka stórum dísilvélum annarra jeppa.
Musso er með sterkbyggða c-bita grind. Þrátt fyrir efnismiklan undirvagn vegur Musso innan við 2000 kg.
Undirvagninn er með vindufjöðrun og klöfum að framan en gormum og stífum að aftan. Hásingar eru stutt Dana 30 að framan en Dana 44 að aftan. Í þessar hásingar fást drifhlutföll í miklu úrvali og á hagstæðu verði. annar kostur Dana/Spicer hásinga er að í þær fást mismunardrifslæsingar af ýmsum gerðum, m.a. loftstýrð ARB sem er 100% læsing. Millikassinn er frá Borg-Warner sem og beinskipti 5 gíra kassinn.
Drifbúnaður Musso er með meiri heildarniðurgírun í 1 gír og lága drifinu en gengur og gerist í óbreyttum jeppum (en það er margfeldið af niðurgírun í 1. gír, lága drifinu og öxuldrifi).
Mikið vélarafl og vítt togsvið er eftirsóknarvert í jeppa. Öflugasti Musso er með 5 sílindra 155 ha Benz-túrbódísilvél eða 220-285 ha 6 sílindra Benz-bensínvél.
Musso er grindarjeppi með vél- og drifbúnað sem auðvelt er að breyta fyrir íslenskar aðstæður auk þess sem mjög mikið framboð er á alls konar aukabúnaði fyrir Musso.
|
|
|
 |
|
|
|