|
|
|
|
|
|
 |
|
|
|
|
|
Þegar framendi bílsins leitar út úr beygju. |
|
|
|
|
 |
|
|
|
|
|
 |
|
| :: greinar |
|
| Tuesday, 13. apríl 2010 - 23:39 |
|
 |
| Ford Mustang |
Saga Ford Mustang hófst árið 1964 þegar fyrsti bíllinn rann af færibandinu 17. apríl en afmælisdaginn ber upp á laugardaginn. Strax og bíllinn var kynntur á heimssýningunni í New York vakti hann gríðarlega athygli enda var um að ræða spennandi bíl, sem kostaði fremur hóflega upphæð eða 2.368 dollara. Umreiknað yfir í gengið í dag er það um 500 þúsund krónur.
Móttökurnar voru góðar. 22 þúsund eintök voru pöntuð fyrsta daginn og fyrsta árið seldust 417 þúsund bílar. Slagkrafturinn árið 1946 var því gríðarlegur. Í dag hefur bíllinn selst í vel yfir 8 milljón eintökum og hefur Ford Mustang, eins og svo margir aðrir bílar, farið í gegnum ýmis tímabil, bensínkreppur og uppsveiflur meðal annars.
Velgengnina má að vissu leiti rekja til hugmyndarinnar að baki bílnum en um var að ræða svokallaðann „pony car“ en það heiti var notað yfir fremur létta bíla sem vöru hönnunarlega sérstakir, með langt húdd og snubbóttann afturenda. Aðrir bílaframleiðendur voru ekki lengi að tileinka sé hina nýju hugmynd.
Mikil fjölbreytni og margar útgáfur
Ford Mustang bílar hafa í gegnum tíðina farið í gegnum nokkur kynslóðaskipti. Fyrsta kynslóðin frá 1964 rann sitt skeið árið 1973 en þá tók við önnur kynslóðin frá 1974 til 1978. Fyrsta kynslóðin er jafnan talin vera sú sígildasta og er kölluð „classic“. Önnur kynslóðin var að vissu leiti fórnarlamb bensínkreppunnar og var hún því kraftminni og minna eftirsótt enda kom á daginn að önnur kynslóðin varð mjög skammlíf á mælikvarða Ford Mustang, aðeins fjögur ár.
Þriðja kynslóð Mustang var öllu betur heppnuð. Sú kynslóð var í framleiðslu alveg frá 1979 til 1993. Það eru fáir slíkir bílar hér á landi.
Fjórða kynslóð Mustang var framleidd frá 1994 til 2004 og eru þeir bílar flestum Íslendingum að góðu kunnir. Það er talsvert til af þeim á Íslandi og voru þeir vinsælir til breytinga. Það var hinsvegar með fimmtu kynslóð bílsins, núverandi kynslóð, sem boltinn fór fyrir alvöru að rúlla aftur hjá Ford Mustang. Sú kynslóð hefur notið gríðarlegra vinsælda og er talsvert mikið til af fimmtu kynslóðinni á Íslandi, meðal annars margt merkra bíla eins og Bullitt, Saleen, GT500 og Roush.
Heimild: Heimasíða Brimborgar
|
|
|
 |
|
|
|