|
|
|
|
|
|
 |
|
|
|
|
|
Þegar framendi bílsins leitar út úr beygju. |
|
|
|
|
 |
|
|
|
|
|
 |
|
| :: greinar |
|
| Thursday, 07. ágúst 2008 - 18:20 |
|
 |
| Packard 180. |
Eftir talsvert erfiða fæðingu er fyrsti forsetabíll íslensku þjóðarinnar kominn í notkun aftur á Bessastöðum. Kostnaður við endurgerð bílsins mun hafa verið nálægt 25 milljónum króna.
Bifreiðin er af Packard-gerð frá árinu 1942 og var fyrsta forsetabifreiðin. Bifreiðin var notuð á upphafsárum Sveins Björnssonar í embætti forseta Íslands.
Bíllinn var keyptur notaður á sínum tíma frá Bandaríkjunum en bifreið sömu gerðar hafði verið gjöf Roosevelts forseta til Sveins Björnssonar. Svo óheppilega vildi til að hún var um borð í Goðafossi þegar skipið var skotið í kaf í nóvember 1944. Bifreiðin er eign Þjóðminjasafns Íslands en verður geymd á Bessastöðum og notuð og sýnd við sérstök tækifæri.
Árið 1998 komst bíllinn í eigu Þjóðminjasafnsins en árið áður hafði Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, lýst yfir áhuga sínum á að bíllinn yrði gerður upp. Hugmyndin var að Packardinn mætti nota sem viðhafnarbifreið forsetaembættisins.
Bíllinn var um langt skeið bifreið forseta Íslands og gestabíll ríkisstjórnarinnar. Síðan var hann seldur og löngu seinna, eða árið 1998, komst hann í eigu Þjóðminjasafnsins, þá orðinn nokkuð lúinn. Ákveðið var að koma bílnum í upprunalegt horf og að verkefninu stóðu Þjóðminjasafnið, forsetaembættið og Bílgreinasambandið.
Það var verkstæði Bílaréttinga- og sprautunar Sævars Péturssonar í Skútuvogi sem stóð fyrir viðgerðinni en á tímabili virtust ætla að verða áhöld um hver greiddi kostnaðinn við hana. Eftir að hafa eytt um 4.000 vinnustundum í bílinn og aðeins fengið brot kostnaðarins greiddan fór Sævar fram á uppboð á bílnum. Um leið var send greiðsluáskorun til forsetaembættisins, Þjóðminjasafnsins og Bílgreinasambandsins en þessir aðilar höfðu farið fram á viðgerð á bílnum áratug á undan. Borgunarmennirnir báru því við að Sævar hafi farið fram úr þeim heimildum sem veittar voru til verksins. Því er Sævar ekki sammála.
Ekki voru smíðaðir nema 700 bílar af þessari gerð á sínum tíma og varahlutirnir eru því vandfundnir og öllum mátti vera ljóst að viðgerðin yrði tímafrek og kostnaðarsöm. Málið leystist að lokum og bíllinn er kominn í notkun.
|
|
|
 |
|
|
|